Á morgun, sunnudaginn 30. júní, ætlar Alla - Aðalheiður Eysteinsdóttir - að ganga með gestum um sýningarnar tíu sem hún opnaði í Listagilinu á Akureyri sl. laugardag í tilefni af fimmtugsafmæli sínu. Sýningarnar og viðburðir á opnuninni vöktu mikla lukku gesta og nú gefst tækifæri til að rýna betur í þær. Leiðsögnin hefst á Listasafninu kl. 14.
Alla er búin að vera í Listagilinu alla vikuna og verður þar einnig um helgina og fram á miðvikudag. Gestum gefast því áfram tækifæri til að spyrja og spjalla.
„Það er búin að vera mjög mikil aðsókn á sýningarnar alla vikuna og fólk er jákvætt og glatt,“ segir Alla og bætir því við að hún geti ekki annað en verið ánægð með hvernig til tókst og viðtökurnar. En þrátt fyrir að hafa nú lokið þessu verkefni, sem hún kallaði Réttardagur – 50 sýninga röð, mun Alla ekki sitja auðum höndum í sumar. „Ég verð með nóg af verkefnum í sumar. Allskonar listasmiðjur og ýmis verkefni. Ég er núna að undirbúa listaráðstefnu sem kallast Reitir og verður haldin í Alþýðuhúsinu á Siglufirði 5. júlí. Svo verð ég með smiðju á LUNGA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, þar verð ég í eina viku, svo það er nóg að gera áfram“.
Þessar myndir tók Þórgnýr Dýrfjörð við opnunina um síðustu helgi.












