Klettur sem spreyjað hefur verið á í Mývatnssveit er líklega fyrirmynd þess skemmdarverks sem nú hefur verið unnið við Svínafellsjökul
Á stóran stein vestan megin við Svínafellsjökul á Öræfum hefur verið spreyjað orðið „rock“ eða grjót. Frá þessu segir á vef mbl.is.
„Steinninn er mjög stór og áberandi en ég giska á að hann sé fjórir eða fimm metrar á hæð. Það er einhvers konar olíumálning sem erfitt verður að ná af. Þetta er svívirða og á ekki að viðgangast,“ segir Sigurður Hrafn Stefnisson leiðsögumaður í samtali við mbl.is.
Ekki er vitað hver var að verki en Guðmundur Ögmundsson aðstoðarmaður þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli segir í Morgunblaðinu í dag að líklega sé um eftirhermu að ræða og vísar til skemmdarverka sem unnin hafa verið Norðanlands og kennd við þýska listamanninn Julius von Bismarck. Þetta hafi uppgötvast fyrir nokkrum vikum síðan en illa hafi gengið að ná málningunni af.












