Lof fær lögreglukonan sem fór fyrir skrúðgöngu á sautjánda júní, segir karl á Akureyri. Hún var sérlega hnarrreist og glæsileg og gaf hátíðinni virðulegan blæ, bætir hann við…
Lof fá ökumenn á Svalbarðsstrandarvegi sem keyra á löglegum hraða og sýna hjóla- og göngufólki tillitssemi en þó eru þeir til sem ógna lífi og limum hjólreiðafólks með háum ökughaða og tillitsleysi. Þetta segir kona sem hafði samband við blaðið. Hún segir að suma daga sé nánast stórhættulegt að fara á hjóli út fyrir Akureyri. Draumur hennar sé að lagður verði hjólastígur allt frá Akureyri til Mývatnssveitar og spurning sé hvort nota megi efni í stíginn sem til fellur vegna Vaðlaheiðarganga…
Lof fær Eygló Harðardóttir fyrir að stimpla sig vel inn sem nýr ráðherra segir kona sem þó segist ekki hafa kosið framsókn. Hún las í Fréttablaðinu um uppvöxt Eyglóar og heldur fram að bakgrunnur hennar sé „blessunarleg andstæða silfurskeiðadrengjanna“. „Ég treysti Eygló betur til að huga að íslenskri alþýðu en nokkrum öðrum í þessum ráðherrahópi. Hún minnir mig sumpart á Katrínu Jakobsdóttur,“ skrifar konan…
Lof fær afgreiðslustúlka í Kjörís ísbúðinni niðri í bæ sem vílaði ekki fyrir sér að búa til nýja ísa án aukakostnaðar fyrir kúnnann þegar börn misskildu eitthvað nýverið og pöntuðu annan ís en þau langaði að fá. Þetta segir kona sem varð vitni að góðri þjónustu þar á bæ…
Og síðasta lof dagsins fá Þingeyingar í Þingeyjarssveit en þeir hafa bannað virkjanir í Skjálfandafljóti. Þingeyingar átta sig greinilega á verðmætum flúða og fossa og horfa langt fram á veginn í stað þess að trúa á „ósjálfbærar skyndilausnir“ eins og karl orðar það sem sendi blaðinu bréf. Löngu er orðið ljóst að hverfa verður frá rányrkjukapítalismanum sem gagnast ekki einu sinni Íslendingum sjálfum heldurt nýtist fyrst og fremst mengandi og misgeðfelldum alþjóðlegum auðhringjum, bætir hann við…












