Hjördís Friðrika Geirsdóttir og börn voru í hópi þeirra sem keyptu sér þyrluflug upp á topp Kerlingar.
Sportferðir hófu nýjung í ferðaþjónustu norðanlands um helgina, útsýnisflug í þyrlu frá Akureyri í samstarfi við Reykjavík Helicopters. Flogið er frá Flötinni við Drottningarbraut og frá Akureyrarflugvelli. Ferðirnar eru allt frá hoppi á Topp Kerlingar, „drottningu fjallana á Tröllaskaga“, til dagsferðar yfir allar helstu perlur Norðulands ss. Öskju, Herðubreið, Dettifoss, Goðafoss, Aldeyjarfoss, Tröllaskaga, Flatey, Huldulandið, Hrísey og Kaldbak.
Samkvæmt tilkynningu frá Sportferðum kostar ódýrasta flugferðin um 120.000 krónur en þá er flogið með „mountain top landing“ á Kerlingu. Ferðin tekur 30-45 mín. Verð 39.000-kr. á mann, lágmark 3 farþegar. Hins vegar segir Marínó Sveinsson hjá Sportferðum að nú tímabundið gefist Akureyringum og öðru fjölskyldufólki kostur á að fara fyrir 75.000 krónur ef fimm fara saman í ferð upp að Kerlingu. Með því langi hann að kynna fyrir fólki stutta upplifun af þyrfluflugi, enda væntanlega fæstir sem flogið hafa í þyrlu.
Aðsókn hefur verið mjög góð að sögn Marínós, þannig voru farin sex flug sl. sunnudag, fyrsta formlega starfsdaginn. Um borð voru bæði farþegar úr skemmtiferðaskipi sem og heimamenn. Yngsti farþeginn var fjögurra ára en sá elsti 89 ára gamall. „Burðurinn í okkar starfsemi verður sennilega útsýnisflug fyrir útlendinga en fyrir þá sem vilja prófa núna stutt þyrluflug héðan með fjölskyldunni gefst núna upplagt tækifæri,“
segir Marínó.
Steingrímur Gunnarsson leiðsögumaður sagði á Rúv í vikunni að hávaði í grennd við náttúruperlur væri þyrnir í augum margra ferðamanna og leiðsögumanna. „Það er merki um það hvað við eigum margt ólært í móttöku ferðamanna að láta fjöldann sem heimsækir náttúruperlur okkar líða fyrir að hygla ákaflega fámennum hópi sem hefur efni á að ferðast í þyrlum og rjúfa þessa kyrrð sem fólk er að sækjast eftir og er mjög mikilvægur í þáttur í heimsókn þeirra til Íslands,“ sagði Steingrímur í fréttum Rúv.












