Innnanríkisráðuneytið hefur hrundið af stað könnun um innanlandsflug hér á landi en könnunin er liður í skýrslugerð um mikilvægi innanlandsflugs sem almenningssamgöngur, fyrir landsbyggðina. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu er mjög mikilvægt að vekja athygli á könnuninni , sem er framkvæmd af Félagsvísindastofnun HÍ nú í júlí, sérstaklega í ljósi aukinna krafa fólks á landsbyggðinni um bættar samgöngur.
Starfsmenn ráðuneytisins hafa undanfarið verið á ferð og flugi um landið að ræða málefni innanlandsflugs við íbúa og fyrirtæki á landsbyggðinni. Er það liður í samráðsferli um framkvæmd félagshagfræðilegrar greiningar á framtíð áætlunarflugs innanlands en það er eitt af stefnumótandi verkefnum sem skilgreind eru í samgönguáætlun 2011-2022.
Fundirnir voru haldnir til að fá fram sjónarmið íbúa og fyrirtækja á nokkrum af áfangastöðum áætlunarflugs á mikilvægi flugsins fyrir byggðarlögin. Í framhaldi af þessarin vinnu mun fara fram könnun á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á mikilvægi flugsins fyrir íbúa á landsbyggðinni, gegnum síma og internet. Fólk er eindregið hvatt til að taka þátt, enda „mikilvægt að renna stoðum undir frekari rekstrargrundvöll flugsins, sem stefnt hefur verið í tvísýnu undanfarin ár með miklum samdrætti í farþegafjölda“, segir í frétt frá ráðuneytinu.


