Verkefnið Reitir býður þessa dagana 30 einstaklingum víðsvegar að úr heiminum til Siglufjarðar að taka þátt í tilraunakenndri nálgun á hinni hefðbundnu listasmiðju. Reitir byggja á þeirri hugmynd að með því að blanda saman starfsgreinum úr mörgum áttum nýtist fjölbreytt reynsla þátttakenda sem grunnur að nýstárlegum verkefnum sem fjalla á einn eða annan hátt um Siglufjörð. Reitir standa yfir í 10 daga en á morgun, sunnudaginn 14. júlí getur almenningur séð og upplifað hin fjölbreyttu verkefni viðsvegar um bæinn. Geta má þess að það verður eini opnunardagurinn.
Aðalstyrktaraðilar verkefnisins eru Menningarráð Eyþings og Evrópa unga fólksins.




