Þegar rúm vika var liðin frá opnun Réttardags Aðalheiðar Eysteinsdóttur í Listagilinu á Akureyri var búið að skrá á annað þúsund gesti í skráningarkerfi Listasafnsins. Er þá ekki talið margmennið á opnunarkvöldinu. Þetta kemu fram í aðsendri grein um list Aðalheiðar á bls. 12-13 í blaði vikunnar.
Öll þessi mikla vinna Öllu er launalaus því Sjónlistamiðstöðin og flest önnur söfn hafa ekki tekið upp þann sið, sem tíðkast víða erlendis, að greiða listamönnum laun fyrir sýningarhald að undanskildu Listasafni Reykjavíkur. Leikarar, tónlistarmenn og dansarar fá greidd laun fyrir þá vinnu sem þeir framkvæma í opinberum stofnunum, en ekki myndlistarmenn. „Ekki þótti úthlutunarnefnd listamannalauna heldur ástæða til að veita Öllu styrk í þetta stórfenglega verkefni sem sýnir það yfirlæti sem viðgengst gagnvart landsbyggðinni og þeim listamönnum sem þar starfa,“ segir m.a. í greininni hér í blaðinu.




