Alla fyrir alla

Alla fyrir alla

Sýningar Öllu, Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, voru opnaðar laugardagskvöldið 22. júní s.l. og eru alls tíu, í sjö sýningarrýmum í Listagilinu á Akureyri og nágrenni þess. Alla vinnur sýningarnar með þátttöku 15 annarra lista- og leikmanna og listnema. Þetta er endapunktur verkefnisins Réttardagur 50 sýningaröð en það hófst á 45 ára afmæli hennar 23. júní 2008.

Á heimasíðu Sjónlistamiðstöðvarinnar (www.sjonlist.is) segir að Alla fjalli hér um íslensku sauðkindina og menningu henni tengdri þar sem markmiðið sé að byggja brú milli listsköpunar og raunveruleikans.

Á heimasíðu Myndlistarfélagsins (www.mynd.blog.is) er hægt að fræðast frekar um verkefnið og þá titla sem hver sýning ber. Í hverjum sýningarsal fyrir sig er titla einnig getið og samstarfsaðila.

Listin og raunveruleikinn
Sýningarnar hafa áður flakkað um landið, auk þess sem hún hefur sýnt víða erlendis. Má nefna sýninguna Að kvöldi réttardags sem var í Safnahúsinu á Húsavík fyrir tveimur árum, einnig sýninguna Á bóndadag í Listasafni Reykjanesbæjar þar sem hljómsveitin Hjálmar lék, við opnunina. Meðlimir hljómsveitarinnar umbreyttust svo líkt og hendi væri veifað í listaverk eftir Öllu og stóðu hljóðir, en sem lifandi, eftir á sviðinu. Í Ketilhúsinu er þessi sýning endurgerð og ómar tónlist Hjálma þar í síbylju til að auka á stemninguna og virkja bæði skynfæri sjónar og heyrnar.
Á opnuninni fékk bragðskynið einnig að njóta þess að smakka á sviðum úr trogi, hjá gestum á Þorrablótinu (stytturnar). Þetta er athyglisverð blanda þess hvernig raunveruleiki sýningargestanna blandast þeim raunveruleika sem list Öllu tjáir. Verða sýningargestirnir kannski sjálfir að list við að sitja við sama borð og stytturnar og neyta með þeim matvöru eða drykkja? Oft getur áhorfandinn ekki, í fljótu bragði, greint hvað er stytta og hvað er lifandi fólk. Sýningargestum gefst tækifæri til að upplifa það í Listasafninu þar sem í boði er kaffibrauð og kaffi.

Pétur Blöndal. Mynd Þórgnýr Dýrfjörð

Er raunveruleikinn list?
Alla minnir okkur á að listin er ekki raunveruleikinn. Við gleymum okkur við að horfa á kindurnar í réttinni og á ótrúlega lifandi styttur af bændum og aðkomufólki utan réttarinnar og bregður við þegar hljóðið sem er undir er hljóð frá trésmíðum listamannsins en ekki jarm kinda og mannsraddir eins og venjan er í réttum. Þetta eru sem sagt ekki ekta dýr, heldur eftirlíkingar, unnar úr afgangs-spýtum. Sumir pirrast og vilja frekar jarmið og raunveruleg hljóð frá réttum sem leyfir þeim að halda ótruflað í tilfinninguna fyrir sveitasælu og að trékindurnar séu alvöru dýr. Aðrir breyta einfaldlega meðvitað eða ómeðvitað þeim hljóðum sem þeir heyra í þau hljóð sem þeir telja sig hafa heyrt eða vilja heyra og snúa þannig skynjun sinni í það sem hentar þeim best. Aðrir skilja bara ekki hvaða mistök hafa átt sér stað; ruglaðist nokkuð hljóðdiskurinn, tilheyrir hann kannski annarri sýningu? Átti jarmið að vera þarna til að gera listina sem líkasta raunveruleikanum, eftirlíkingu og láta okkur gleyma því að þetta er listsýning en ekki raunveruleiki.

Listin hreyfir við skynfærunum
Svipuð tilfinning grípur einhverja gesti þegar þeir koma í vestursal Listasafnsins og sjá kindur á færibandi á leið til slátrunar. Við enda færibandsins er timbursög sem minnir áhorfendann á að þetta eru timburkindur en ekki lifandi dýr á leið til alvöru slátrunar. Slátrarinn stendur eins og lifandi maður með hvíta svuntu, með blóðslettu á. Á veggnum er kindahausum haganlega komið fyrir og getur áhorfandinn fundið ýmislegt út úr því t.d. styttur, sem list heima á vegg, dýrahausar sem eru að verða að sviðum á Þorrablóti, listaverk sem haganlega er komið fyrir á listsýningu o. fl. o. fl. Skynfæri okkar og líkami bregðast mismunandi við eftir því hver afstaða okkar er sem áhorfenda. Ef við hugsum um hausana sem svið/mat sem okkur líkar, fáum við vatn í munninn og finnum til svengdar. Ef við hugsum um hausana sem listaverk sem okkur langar til að eignast förum við að telja peningana okkar í huganum, fáum ekki vatn í munninn en hugsanlega ívið hærri púls og aukið adrenalínflæði. Þannig mætti lengi telja þau áhrif eða þær hugsanir sem áhorfandinn skynjar á hverri sýningu. Á sýningunni Sauðburður í Mjólkurbúðinni er jarm sem tekið er upp á sauðburði og þar geta skynfærin aftur ímyndað sér sveitailminn og náttúrutenginguna og gleymt því eitt andartak að um listsýningu er að ræða gerða úr afgangs-spýtum sem aðrir hafa litið á sem ónothæft drasl og viljað henda. Leikur Öllu að frummyndum og eftirlíkingum er spennandi og gefur áhorfandanum tækifæri til að staldra við og hugsa.

Réttardagur. Mynd: Þórgnýr Dýrfjörð

Sauðkindin heldur velli
Í sýningarskrá sem Alla hefur gefið út og er til sölu í sýningarsölunum segir hún: “Merkilegt hvað fjárbúskapurinn á sér sterkar rætur í þjóðarsál Íslendinga. Innan um alla nýsköpun heldur sauðkindin velli”. Í skránni er fjallað um tildrög sýninganna og þar eru upplýsingar um alla þá 15 sem tóku þátt í verkefninu með henni og of langt mál er að telja upp hér. Nöfn þeirra eru sem fyrr segir í öllum sýningarsölunum eftir því sem við á. Þar skrifar einnig Jan Voss myndlistarmaður og dregur upp glögga mynd af Öllu. Hann segir að margt af því sem hún taki sér fyrir hendur kalli á þátttöku annarra. Einnig nefnir hann hennar næma auga fyrir hlutföllum og að hún nýti sér það í list sinni. Hann rekur frásögn sína af fyrsta spýtukubbaskúlptúrnum, eins og hann kallar það, sem hann sá. Það var stytta af Dieter Roth sitjandi við borð að skrifa. Hrökk Jan við því honum fannst hann þarna sjá Dieter sem raunverulegan en hann var þá löngu látinn. Þess skal getið að Alla hitti Dieter aldrei í lifanda lífi. Næmt auga hennar og listfengi getur þannig blekkt áhorfandann.

Í sýningaskrá sem gefin var út af Listasafni Reykjanesbæjar vegna sýningaraðarinnar 2012 skrifar Aðalsteinn Ingólfsson: “Í myndverkum Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur á sér stað óvenjulegra stefnumót íslenskra og erlendra myndlistarhefða en við höfum áður séð. Annars vegar eru verk hennar íslenskara en allt sem íslenskt er, sprottin beinustu leið upp úr margra alda gamalli tálgu- og tréskurðarhefð meðal þjóðarinnar, í bland við alþýðlega sagnalist af kynlegum kvistum eins og þeim sem birtast ljóslifandi í skáldsögum Jóns Thoroddsen. Á hinn bóginn sækir Aðalheiður vinnubrögð sín til myndlistarmanna beggja vegna Atlantsála sem meðvitað og ómeðvitað ögruðu hámenningarlegum viðhorfum neysluþjóðfélagsins með endurvinnslu úrgangs af ýmsu tagi”. Hann telur svo upp nokkra listamenn en hægt er að sjá þennan texta í heild sinni á heimasíðu Öllu.

Alla slær aðsóknarmet
Á sýningum Öllu eru aðsóknarmet iðulega slegin. Þegar þessi texti er skrifaður, 3. júlí, er rúm vika liðin frá opnun sýninganna og skráðir eru á annað þúsund gestir í skráningarkerfi Listasafnsins og þá er ekki talið margmennið á opnunarkvöldinu. Mannfjöldinn í Listagilinu, á opnuninni, minnti helst á hátíðir eins og Akureyrarvöku.

Öll þessi mikla vinna Öllu er launalaus því Sjónlistamiðstöðin og flest önnur söfn hafa ekki tekið upp þann sið, sem tíðkast víða erlendis, að greiða listamönnum laun fyrir sýningarhald að undanskildu Listasafni Reykjavíkur. Leikarar, tónlistarmenn og dansarar fá greidd laun fyrir þá vinnu sem þeir framkvæma í opinberum stofnunum, en ekki myndlistarmenn. Ekki þótti úthlutunarnefnd listamannalauna heldur ástæða til að veita Öllu styrk í þetta stórfenglega verkefni sem sýnir það yfirlæti sem viðgengst gagnvart landsbyggðinni og þeim listamönnum sem þar starfa. Ekki nokkur listamaður hefur nokkru sinni, í sögu landsins, opnað jafn viðamikla sýningu á jafn mörgum stöðum og boðið til annarrar eins veislu. Íslendingar vilja að miklu leiti byggja afkomu sína á ferðamennsku. Það sem erlendir ferðamenn vilja helst sjá fyrir utan landslagið og náttúruna er menning og listir landsins. Listir þrífast ekki í endalausri sjálfboðavinnu og hjáverkum, ekki á þann hátt sem er samkeppnishæft við þær þjóðir sem við viljum helst bera okkur saman við, Norðurlöndin og lönd í vestur Evrópu. Þær þjóðir eyða margfalt hærri prósentu í framlög til lista en hér er gert enda byggir t.d. Holland upp ferðamannaiðnað sinn mestmegnis á listum Rembrandts og Van Gogh. Styðja verður við listir og vernda alveg eins og aðra atvinnuvegi ef á að gera út á þær til framtíðar. Því er umræða dagsins um niðurfellingu listamannalauna tímaskekkja. Ólafur Elíasson hefur margoft þakkað það danska styrkjakerfinu hvað honum tókst að koma sér vel áfram í listinni, fyrst í París, svo allri Evrópu, Ameríku og öðrum heimshlutum.

Ókeypis aðgangur og leiðsögn
Sýningar Öllu standa mislengi eftir sýningarrýmum en sú í Listasafninu stendur til 11. ágúst. Reglulega er boðið upp á leiðsögn um sýningarnar sem er gagnlegt fyrir þá sem vilja frekari fræðslu og upplýsingar. Það nýtist til að dýpka skilning, skerpa sýn sína og hugsanlega sjá sýninguna og umhverfið með öðrum augum. Það þarf þjálfun í að njóta menningar og lista og fræðsla um sýningar er ein leið til þess. Leiðsögnin er ókeypis sem og aðgangur í Sjónlistamiðstöðina. Allir ættu að hafa gagn og gaman af því að sjá sýningarnar sem eru áhugaverður samsetningur þess þjóðlega og þess alþjóðlega sem á sér stað í listum í dag. Sýningarnar eru uppspretta margskonar tilfinninga og vangaveltna. Fólk á öllum aldri, óháð menntun eða þjóðfélagsstöðu, ætti að geta notið hennar hver á sinn hátt. Á sýningunni getur áhorfandinn séð í styttunum einstaklinga sem hann telur sig þekkja eða kannast við úr sínu daglega lífi eða fjölmiðlum, jafnvel séð sjálfan sig í einhverjum þeirra. Mjög gott er að skoða sýningarnar oftar en einu sinni því menn upplifa og sjá sífellt eitthvað nýtt og hlutirnir breytast við áhorf.

Fyrir þá sem meira vilja vita um sýningarnar og list Öllu má benda á viðtal við Hlyn Hallsson myndlistarmann í Víðsjá, RÚV, mánudaginn 24. júní s.l. Hann telur samstarf vera það sem mest er einkennandi fyrir Öllu og hennar list; samstarf sem hún á við aðra einstaklinga eða hópa – að það sé áhugaverður grunnur að því sem hún gerir og nefnir hann þar mörg dæmi. Einnig tengir Hlynur hana sterkt við Dieter Roth og Fluxus-hreyfinguna.

Flestir fjölmiðlar landsins hafa undanfarið fjallað um þær sýningar Öllu sem nú standa yfir á Akureyri enda er um stórviðburð að ræða.

G. Pálína Guðmundsdóttir

Siglfirski síldarsöltunarhópurinn í Svíþjóð

Þriðju norrrænu strandmenningarhátíðinni lauk í gær, en hún var nú haldin í Karlskrona í Svíþjóð. Íslenskir þátttakendur voru tuttugu talsins og mjög sýnilegir. Átta manna hópur ... Lesa »

Innanríkisráðuneyti leitar upplýsinga um samning vegna þyrluferða

Innanríkisráðuneytið sendi nú í byrjun júlí sveitarfélaginu Dalvíkurbyggð bréf þar sem óskað er eftir afriti af samningum sem gerðir voru við ferðaþjónustufyrirtækið Bergmenn ... Lesa »

Miðaldadagar á Gásum - kynningarmyndband

Miðaldadagar verða haldnir á Gásum um miðjan júlí, nánar tiltekið 19. - 21. júlí en þetta er í 10. skiptið sem þeir eru haldir. Þar er reynt að endurskapa lífið eins og það gæti ... Lesa »

Píanótónleikar í Akureyrarkirkju

Í dag, sunnudaginn 14. júlí, kl. 17 verða píanótónleikar í Akureyrarkirkju en þá leikur Peter Maté verk eftir Rachmaninoff, Liszt, Beethoven og Þorkel Sigurbjörnsson. Peter Máté er af ... Lesa »

Alla fyrir alla

Sýningar Öllu, Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, voru opnaðar laugardagskvöldið 22. júní s.l. og eru alls tíu, í sjö sýningarrýmum í Listagilinu á Akureyri og nágrenni þess. Alla vinnur ... Lesa »

Broddur til sölu!

Sumardagur á sveitamarkaði í Eyjafjarðarsveit hefur nú göngu sína áttunda sumarið. Markaðurinn er eins og áður á blómum prýddu torgi Gömlu garðyrkjustöðvarinnar við ... Lesa »

Listasmiðja á Siglufirði

Verkefnið Reitir býður þessa dagana 30 einstaklingum víðsvegar að úr heiminum til Siglufjarðar að taka þátt í tilraunakenndri nálgun á hinni hefðbundnu listasmiðju. Reitir byggja á ... Lesa »

Kjúklingapottur

Þetta er alveg geggjaður kjúklingapottréttur sem tekur um hálftíma að útbúa. Fljótlegur og frábær á virku kvöldi. Láttu ekki fjölda hvítlauksrifjanna skelfa þig. Bragðið breytist ... Lesa »

Strákum enn sagt að harka af sér

Töluvert fleiri stúlkur en drengir leituðu sér sálfræðiaðstoðar innan veggja Verkmenntaskólans á Akureyri í fyrravetur. Þetta kemur fram í ársskýrslu um sálfræðiþjónustu í ... Lesa »

Ráðherrasprenging - myndband

Í dag sprengdi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis, fyrstu formlegu sprenginguna fyrir Vaðlaheiðargöngum. Heyrðist sprengingin vel til ... Lesa »

Sýningu Hlyns að ljúka

Nú líður að lokum sýningar Hlyns Hallssonar í Kartöflugeymslunni í Listagilinu á Akureyri. Síðasti sýningardagur er föstudagurinn 12. júlí og sýningin er opin daglega kl. 14-16. Á ... Lesa »

Kynning á frisbígolfi

Undanfarin ár hefur frisbígolf eða „folf“ náð fótfestu hér á landi og eru vinsældir þess stöðugt að aukast. Frisbígolf er spilað með frisbídiskum og takmarkið er að kasta ... Lesa »

Lof og last

Lof og last

Lof fær Gallabuxnabúðin á Akureyri fyrir að vera með eina gínu sem er „ekki undir kjörþyngd“. Kannski er það einsdæmi meðal norðlenskra verslana, segir kona sem sendi blaðinu bréf. ... Lesa »

Ekki vegið að einstaklingum

Mikil viðbrögð hafa orðið í kjölfar viðtals semblaðið birti við Ásbjörn Björgvinsson í síðustu viku þar sem Ásbjörn setti spurningamerki við óheft þyrluflug og hugsanlega ... Lesa »

Forvarnir gegn nauðgunum

Allar sveitarstjórnir landsins hafa fengið hvatningu frá Saman-hópnum um að hugað verði að forvarnarstarfi í tengslum við bæjar- og útihátíðir í sumar. Nú þegar verslunarmannahelgin ... Lesa »

Unglingavinnan setji bæinn á hausinn?

Unglingar á Akureyri sitja ekki við sama borð og margir innlendir jafnaldrar þeirra segir móðir barns sem stundar unglingavinnu hjá Akureyrarbæ í sumar. Móðirin segir að þeir unglingar ... Lesa »

Pödduganga í Kjarnaskógi

Á laugardaginn mun Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur stýra pöddugöngu í Kjarnaskógi. Lagt verður af stað frá Kjarnakoti kl. 13.30 en Bjarni mun fræða þátttakendur um hvaða ... Lesa »

Alfreð Gíslason heiðraður

Handboltakappanum Alfreð Gíslasyni var í dag veitt heiðursviðurkenning íþróttaráðs Akureyrar og Afrekssjóðs Akureyrar við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi. Við það ... Lesa »

Jón Óðinn Waage

Löreglustarfið erfitt og vanþakklátt en traust ekki sjálfgefið

Jón Óðinn Waage, fyrrum lögreglumaður á Akureyri, sjálfsvarnarkennari og dyravörður tjáði sig á Facebooksíðu sinni um handtökuna sem átti sér stað í Reykjavík nýlegaog náðist á ... Lesa »

Ráðherrasprenging

Búið er að sprengja á annan tug metra inn í bergið vegna Vaðlaheiðarganga. Alls vinna nú um 30 starfsmenn við verkið en þeir verða allt að 60 þegar mest verður. Þrjár vaktir verða ... Lesa »

Þetta er 100 sinnum verra en skelfilegt

Nýjasta afurð félaganna Dabba Rún, Sigga Rún, Þórhalls, Hólmars og Péturs er þetta myndband sem sjá má hér að neðan. „Þetta er 100 sinnum verra en skelfilegt,“ sagði Dabbi í ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

HEYRST HEFUR að gríðarfjöldi góðra gesta hafi heimsótt Akureyri vegna Pollamótsins um síðustu helgi. Ekki bar skugga á, þótt veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska. Settu herdeildir ... Lesa »

4G þjónusta komin í loftið í Eyjafirði

Akureyri og nærliggjandi sveitir eru komnar í 4G netsamband, eftir að slíkir sendar á vegum Vodafone voru formlega teknir í notkun í morgun. 4G þjónusta Vodafone nær til sumarhúsasvæða í ... Lesa »

Aðsóknarmet en engir peningar fyrir myndlist

Þegar rúm vika var liðin frá opnun Réttardags Aðalheiðar Eysteinsdóttur í Listagilinu á Akureyri var búið að skrá á annað þúsund gesti í skráningarkerfi Listasafnsins. Er þá ekki ... Lesa »

Lokasýning á Lúkas í kvöld

Í kvöld kl. 20 verður lokasýning á leikritinu Lúkas sem Norðurbandalagið frumsýndi 21.júní sl. í Rýminu og vakið hefur mikla lukku áhorfenda. Verkefnið er hluti af Skapandi ... Lesa »

Skoða meira