Nýjasta afurð félaganna Dabba Rún, Sigga Rún, Þórhalls, Hólmars og Péturs er þetta myndband sem sjá má hér að neðan. „Þetta er 100 sinnum verra en skelfilegt,“ sagði Dabbi í viðtali við blaðamann og segir myndbandið vera lið í sáttagjörð þeirra félaga sem nýverið áttu í erfiðleikum með að koma sér saman um tónlistarstefnu Dynheimaballanna.
„Við tökum þarna tvö lög sem sýna að þessar tónlistarstefnur, diskótímabilið og næntís, geta vel farið saman. It´s raining men með The Weather Girls og svo lagið Jump með Pointer sisters.“ segir Dabbi og viðurkennir að þetta sé heilmikill fíflagangur. „Við eigum að vera svartir þarna í myndbandinu, enda eru þetta allt svartar konur, reyndar kemur þetta kannski meira út eins og við séum skítugir,“ segir Dabbi og hlær. „Þetta getur nú líka alveg talist okkar framlag í kvenréttindabaráttuna, því þetta eru jú allt hörkudömur sem við erum að herma eftir“.




