Hljómsveitin Domowe Melodie er sögð ein stærsta uppgvötun síðasta ár í pólsku tónlistarlífi en þau halda tónleika á Akureyri Backpackers fimmtudagskvöldið 12. júlí. Tónleikarnir eru hluti af ProjektPolska.is, sem er hópur ungra Pólverja sem vilja taka virkan þátt í íslensku menningarlífi.
Í tilkynningu um viðburðinn segir að Domowe Melodie hafi birst upp úr þurru, með nokkur myndbönd sem þau tóku sjálf upp heima hjá sér. „Dáleiðandi raddir og yndislegir tónar náðu fljótt eyrum fólks. Nokkrum mánuðum seinna gáfu þau út sína fyrstu plötu og sönnuðu að vilji og hæfni er allt sem þarf. Platan fékk frábæra dóma og fjölda verðlauna. Domowe Melodie eiga aðdáendur á öllum aldri og seljast miðar á tónleika þeirra upp á einungis nokkrum klukkutímum. Í þetta skiptið er þó frítt inn, svo þú skalt ekki láta þetta tækifæri fram hjá þér fara!“
Hér má hlusta á lagið Grażka




