Á laugardaginn mun Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur stýra pöddugöngu í Kjarnaskógi. Lagt verður af stað frá Kjarnakoti kl. 13.30 en Bjarni mun fræða þátttakendur um hvaða smádýr leynast í skógarbotninum auk þess sem hægt verður að skoða sum þeirra í víðsjá að göngu lokinni og þiggja léttar veitingar.
Það er Skógræktarfélag Eyfirðinga sem stendur fyrir viðburðinum og eru allir velkomnir.




