Akureyri og nærliggjandi sveitir eru komnar í 4G netsamband, eftir að slíkir sendar á vegum Vodafone voru formlega teknir í notkun í morgun. 4G þjónusta Vodafone nær til sumarhúsasvæða í nágrenni Akureyrar, en sambandið er mjög gott í bænum þar sem bæjarbúar og ferðafólk getur nýtt sér þjónustuna. Frá þessu segir í fréttatilkynningu frá Vodafone.
Upplýsingar um nauðsynlegan búnað eru veittar í verslununum Vodafone, m.a. á Glerártorgi á Akureyri , en einnig á vef Vodafone og í síma 1414. Upplýsingar um þjónustusvæðið má nálgast hér.
Opnun 4G þjónustu Vodafone í Eyjafirði er hluti af uppfærslu á farsímakerfi fyrirtækisins á Norðurlandi. Auk 4G sendanna hefur hefðbundnum farsímasendum verið skipt út fyrir nýja af bestu gerð. Vinnu endurnýjun farsímasenda á Hálsi í Eyjafirði lauk á miðvikudag, en áður var búið að endurnýja senda í Víkurskarði, í Hörgárdal og Öxnadal. Í dag eru tæknimenn Vodafone að störfum í Svarfaðardal, við útskiptingu á eldri sendum fyrir nýja og undirbúningur vegna 3G þjónustu fyrir Hrafnagil og nágrenni er í fullum gangi.
Vodafone veitir einnig 4G þjónustu á stórum svæðum á Suður- og Vesturlandi, þar sem megináherslan er lögð á að koma notendum orlofshúsa í gott netsamband á svæðum sem áður voru illa nettengd.




