Búið er að sprengja á annan tug metra inn í bergið vegna Vaðlaheiðarganga. Alls vinna nú um 30 starfsmenn við verkið en þeir verða allt að 60 þegar mest verður. Þrjár vaktir verða settar upp til að sprengja göngin sjálf og verður unnið allan sólarhringinn á tveimur tólf tíma vöktum. Akureyringar hafa fundið vel fyrir fyrstu sprengingunum en samt eru þær ekki eins öflugar og þegar innar dregur þegar reynt verður að sprengja allt að fimm metra í einu.
Á morgun milli kl. 14-15 fer fram formleg sprenging og mun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, standa að henni. Sprenging muni heyrast til Akureyrar og er fólk beðið um að gera sér ekki ferð á svæðið af þessu tilefni en af öryggisástæðum þarf að takmarka fjölda þeirra sem verða viðstaddir þessa fyrstu sprengingu. Þá má einnig búast við töfum á umferð á þjóðvegi 1 við Vaðlaheiði á þessum tíma.




