Í kvöld kl. 20 verður lokasýning á leikritinu Lúkas sem Norðurbandalagið frumsýndi 21.júní sl. í Rýminu og vakið hefur mikla lukku áhorfenda.
Verkefnið er hluti af Skapandi sumarstörfum Akureyrarbæjar en leikhópurinn, sem kallar sig Norðurbandalagið, tók til starfa í sumarbyrjun og á örfáum vikum var hópurinn búinn að semja og æfa leikritið ásamt öllu sem því fylgir, svo sem tónlist, búningum, hljóðmynd, lýsingu og sviðsmynd.
Hér má lesa gagnrýni Sólveigar Þórhallsdóttur á leikritið
Hægt er að kaupa miða á midi.is eða í Eymundsson




