Mikil viðbrögð hafa orðið í kjölfar viðtals semblaðið birti við Ásbjörn Björgvinsson í síðustu viku þar sem Ásbjörn setti spurningamerki við óheft þyrluflug og hugsanlega árekstra þess við frið og kyrrð ferðamanna í grennd við náttúruperlur. Ásbjörn vill taka fram að ummæli hans hafi alls ekki verið persónuleg árás á nein einstök fyrirtæki eða þjónustu heldur hafi hann viljað hnykkja á að almennt vanti reglur og umræðu um þyrluflug eins og svo margt annað og hvernig við ætlum að standa að uppbyggingu ferðaþjónstunnar almennt séð. „Það sé ekki gott að allt sé leyfilegt nema það sé fyrirfram bannað. Greinin þarf að koma sér saman um megin línur og stuðla að þróun greinarinnar á þann hátt að einhver tegund afþreyingar skemmi ekki upplifunina fyrir öðrum sem eru hér til að njóta annarrar tegundar upplifunar,“ segir Ásbjörn í athugasemd sem hann sendi blaðinu.
Hann bendir á að hann sé mjög sáttur við að Jökull Bergmann hafi náð samningum við Dalvíkurbyggð um einkaleyfi á flugi innan sveitarfélagsins til að reyna að halda þyrlufluginu í lágmarki, þ.e. að ekki yrðu of margar þyrlur á svæðinu í einu. Fjöllin séu ein tegund auðlindar og þau verði að nýta með saman hugsunarhætti og allt annað, þ.e. með sjálfbærum hætti.




