Lof fær Gallabuxnabúðin á Akureyri fyrir að vera með eina gínu sem er „ekki undir kjörþyngd“. Kannski er það einsdæmi meðal norðlenskra verslana, segir kona sem sendi blaðinu bréf. „Mér finnst að fjölbreytnin eigi að fá að njóta sín þegar kemur að gínum og uppstillingum á fötum eins og öðru,“ skrifar konan.
Last fær Nettó fyrir að endurnýja kerruflotann sinn og skipta út kerrum með öryggisbeltum í barnasætum fyrir kerrur með engum öryggisbúnaði. Svo mælir dyggur lesandi vikublaðsins Akureyri.
Last fær sá sem skrifaði lastgrein í síðasta blað um að Akureyrarbær væri ósnyrtilegur og persónugerði Odd Helga Halldórsson í því sambandi. „Mér finnst að skrifari verði að fá LAST fyrir þessa grein, sérstaklega fyrir orðin “Helber lygi”. Mér finnst bærinn þvert á móti vel snyrtur bæði í ár og í fyrra og miklu betri en þegar einkaaðilar sáu um snyrtinguna. Mikill munur er þar til hins betra eftir að bærinn tók við snyrtingunni,“ segir bréfritari.
Last fær sú annars frábæra ísbúð Brynja á Akureyri vegna verðlagningar, skrifar kona í bréfi til blaðsins. „Verslunin hefur nú (a.m.k.) hækkað verðið á miðstærð af bragðaref um heilar 100 krónur, eða úr 890 kr. í 990 kr. en þegar ég kom í verslunina var ekki búið að breyta verðlagninunni fyrir augu viðskiptavinarins, afgreiðslustúlkan sagði mér þetta einungis þegar ég hváði yfir verðinu sem hún stimplaði í kassann. Auk þess hefur verslunin einnig verðlagt 50 krónur á hverja aukadollu, þ.e. að skipta einum bragðaref milli barnanna minna kostar mig nú auka 50 krónur. Það þarf enginn að segja mér það að pappadolla af slíku tagi kosti 50 krónur í innkaupum! Þetta finnst mér allt of mikil verðhækkun á einu bretti og ég á ekki einu sinni til orð yfir það að pappadollan sé verðlögð aukalega,“ segir bréfritari…




