Fyrir skömmu frumsýndi Norðurbandalagið leikverkið Lúkas í Rýminu á Akureyri. Leikhópurinn sem að sýningunni stendur telur ungmenni sem í sumar fengu vinnu hjá Akureyrarbæ í gegnum verkefnið Skapandi sumarstörf. Það er mikið gleðiefni að Akureyrarbær skuli bjóða ungu fólki upp á slíka sumarvinnu og er útkoman þetta árið með eindæmum glæsileg og fór langt fram úr væntingum undirritaðrar. Verkið sjálft er spunasýning unnin af leikhópnum undir stjórn leikstjórans Jóns Gunnars Th.
Það verður varla hjá því komist að kalla leikhópinn hugrakkan og áræðinn og stafar það einkum af tvennu. Í fyrsta lagi fékk hópurinn einungis þrjár vikur til þess að setja saman leikverk í fullri lengd. Leikverk sem inniheldur allt það sem þyrstan leikhúsgest fýsir að sjá og upplifa; góðan leik, tónlist, fjölbreyttan söng, kóreógrafíu og töframátt leikhússtækninnar. Í öðru lagi er efnið sem hópurinn velur til umfjöllunar ákaflega áhugavert og um leið ef til vill vandmeðfarið. Sýningin samanstendur af frásögnum um atburði sem raunverulega hafa átt sér stað og fjalla meðal annars um mannlegan breyskleika, dómhörku í garð náungans og fyrirgefninguna. Titill verksins vísar í frásögn af hundinum Lúkasi, en sögusagnir bárust af því að ungur piltur hefði drepið hundinn Lúkas á hrottafenginn hátt. Í ljós kom að svo hefði ekki verið, en orðspor og sálarlíf piltsins hafði þá beðið mikinn hnekki. Internetið logaði af ummælum um hann og dómstóll götunnar dæmdi piltinn sekan. Lúkasarmálinu svokallaða lauk með einkamáli sem pilturinn höfðaði og voru honum dæmdar miskabætur og ákveðin ummæli um hann voru í héraðsdómi dæmd dauð og ómerk. Sagan af Lúkasi er þó langt í frá eina sagan sem sögð er í verkinu, en þar er stungið á mörg kýli og tekið á ýmsum málum sem snerta okkur öll og hrista upp í áhorfendum.
Það er kraftaverki líkast að eftir einungis þriggja vikna vinnu skuli þessi leikhópur geta fært áhorfendum slíka leikhúsupplifun sem hér um ræðir. Leikarahópurinn er bæði samstilltur og fjölhæfur, einlægur og heiðarlegur í sinni vinnu. Í honum má finna marga efnilega unga leikara sem áhorfendur fá vonandi að njóta í framtíðinni. Með mikilli leikgleði og glampa í augum ná þessi glæsilegu ungmenni að snerta hjörtu áhorfenda og vekja þá til umhugsunar um ýmis brennandi málefni. Leikstjóri sýningarinnar hlýtur að vera gæddur bæði náð og töfrum, en það getur tæplega talist á færi hvers sem er að skapa það sem honum hefur tekist hér. Vert er að hvetja alla, sem náð hafa 14 ára aldri, að leggja leið sína í Rýmið og njóta leikhúss sem virkilega hreyfir við hverjum hugsandi manni.
Sólveig Þórhallsdóttir



