Hríseyjarhátíðin fer fram um næstu helgi, 12.-14. júlí, og eru nú eyjaskeggjar á fullu í undirbúningi og mikil stemmning í eyjunni. „Það eru allir eyjarskeggjar saman í þessu og í dag förum við að undirbúa hátíðarsvæðið,“ segir Jón Gunnar Th. framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
„Þetta verður sannkölluð fjölskylduhátíð og mikil dagskrá fyrir alla aldurshópa,“ segir Jón Gunnar en meðal annars verða þrjár ólíkar óvissuferðir, ein fyrir börn, önnur fyrir unga fólkið og sú þriðja fyrir fullorðna. „Þá ætlum við að koma fólki á óvart út um alla eyju“.
Tónlist spilar stóra rullu á hátíðinni, í sundlauginni verður plötusnúður, fiðluleikur á höfninni og tónlist um borð í ferjunni. „Það verður tónlist hvert sem þú ferð því það verða trúbadorar út um alla eyju að spila,“ segir Jón Gunnar en ratleikur um eyjuna verður í gangi alla helgina.
Í fjörunni verður sandkastalakeppni og prammahlaup en einnig verður boðið upp á fjöruferð með Skralla trúð. Á svæðinu verða líka sápurennibrautir og sápufótbolti.
Á hátíðarsvæðinu verða hamborgarar og pylsur grillaðar en þar verður líka boðið upp á sérstakt hvannar-sushi og hvannar-plokkfisk enda vex mikið af hvönn í Hrísey.
Á laugardagskvöldið verður svo stóra kvöldið en þá fer fram kvöldvaka þar sem margt gott tónlistarfólk treður upp, m.a. hljómsveitin Sister sister, Brynja & Ósk, Sölvi Árnason sem syngur lög eftir Johnny Cash, dalvíski trúbadorinn Haraldur Örn Haraldsson og fleiri en botninn í tónleikana slær sjálfur KK. En að tónleikunum loknum verður varðeldur og brekkusöngur sem Evróvisjónhetjan Eyþór Ingi leiðir.
„Það er gríðarmikil stemmning í eyjunni og ég er viss um að það verður gott verður og þetta verður mögnuð skemmtun,“ segir Jón Gunnar að lokum.
Hríseyjarferjan siglir á tveggja tíma fresti alla helgina svo fólk getur valið hvort gist er í eynni en nóg er af tjaldsvæðum og hægt er að koma með tjaldvagna í ferjuna en þá þarf að hringja og láta vita af því fyrirfram. Fleiri upplýsingar um Hrísey, hátíðina og ferjuna má finna á vefnum hrísey.net. Aðgangur inn á hátíðina sjálfa er ókeypis en þátttökugjald er í suma viðburðina.

