Söngkonan vinsæla, Kristjana Arngrímsdóttir, kemur fram á þriðju Sumartónleikum í Akureyrarkirkju þetta sumarið. Með henni koma fram þeir Örn Eldjárn og Jón Rafnsson. Þau munu flytja blandaða söngdagskrá, eins og þeim einum er lagið.
Kristjana er fædd á Dalvík og nam tónlist á Íslandi og í Danmörku. Hún var í 14 ár félagi í Tjarnarkvartettinum sem var þekktur víða um Evrópu fyrir flutning á norrænum söng- og þjóðlögum og hefur hún að auki gefið út nokkra einsöngs geisladiska sem hafa notið mikillar hylli fyrir sönggleði og vandaðan flutning.
Tónleikarnir eru sunnudaginn 21. júlí kl. 17 og er aðgangur ókeypis


