Sævar Sigurgeirsson Þingeyingur, meðlimur í Ljótu hálfvitunum og handritshöfundur sem starfað hefur að áramótaskaupinu sl. fjögur ár segir í opnuviðtali í blaðinu í dag að það sé orðið tímabært að taka sér hlé frá skaupinu þótt hann útiloki ekki endurkomu síðar. Hann segir skaupið „snarklikkaðan sjónvarpsþátt“.
„Hvað síðasta skaup varðar vorum við sökuð um að vera rætin, ófyndin, fara yfir siðferðismörk og mikið var skammast yfir orðbragðinu. Þetta er skemmtilega ögrandi og snarklikkaður sjónvarpsþáttur að því leyti að krafan er um að höfða til allra Íslendinga með húmor og glensi í klukkutíma, óháð aldri, kyni, stöðu eða pólistískum skoðunum. Handritshöfundar eru margir og það þarf að gera málamiðlanir. Oft sjáum við líka ekki útkomuna fyrr en kannski daginn fyrir frumsýningu. Þá hefur leikstjórinn valið inn atriði eftir sínum áherslum,“ segir Sævar.
Sævar upplýsir að efni sem er búið til fái stundum ekki að vera með. Annaðhvort úreldist grínið, aðstæður breytist, eða leikstjórinn meti útkomuna hreinlega ekki nógu góða. „Svo þarf að þjappa þessu niður í ákveðna lengd og þá getu heilu söngleikirnir legið á gólfi klipparans. Svo geta menn verið sammála eða ósammála um hvaða efni hangir inni og hvað ekki. Sumir gagnrýndu t.d. of miklar endurtekningar í því síðasta.“
Sjá bls. 12-13 í blaði vikunnar


