Hjóladagar bifhjólaklúbbsins Tíunnar hefjast í dag með hópakstri sem fer frá Ráðhústorgi kl. 19 og endar með vöfflukaffi á Mótorhjólasafni Íslands.
Á dagskrá Hjóladaga eru svo grillferð til Hauganess á morgun og á laugardag verður markaðstorg á Ráðhústorgi, skiptimarkaður, pylsuátkeppni sem hefst kl 14 og keppni í þrautabraut sem hefst kl. 14:45
Hjóladagar hafa verið árlegur viðburður frá árinu 2008 og því er þetta í sjötta skiptið sem þeir eru haldnir og hafa farið vel fram og bæjarbúar ekki haft mikið af þeim að segja annað en ánægju yfir að skoða mótorhjólin á Ráðhústorgi og fylgjast með fimu bifhjólafólki í þrautabraut.


