Kátir dagar á Þórshöfn hefjast í dag

Kátir dagar á Þórshöfn hefjast í dag

Kátir dagar verða haldnir á Þórshöfn um helgina 19.-21. júlí. Að venju verður margt fróðlegt og skemmtilegt í boði fyrir alla aldurshópa. Veðurspá helgarinnar er afar góð. „Enginn er svikinn af þessari hátið og njóta í leiðinni einstakrar náttúru svæðisins og einstakrar þjónustu og gestrisni heimamanna,“ eins og segir á vef stéttarfélagsins Framsýnar .

Dagskrá hátíðarinnar

Föstudagurinn 19. júlí:
21:00 – Barsvar á Bárunni. Spyrill verður enginn annar en Ránar Jónsson.
00:00 – 03:00 – 3 Gráir Skuggar spila fram eftir nóttu á Bárunni. Miðaverð er 2000 kr.

Laugardagurinn 20. júlí:
10:00 – 13:00 – Ungmennafélag Langnesinga býður fólki upp á kanósiglingar.
13:00 – 17:00 – Útimarkaðir á Eyrarvegi fyrir framan Veitingahúsið Báruna. Smökkun á kúskel, þorski og ufsa, snyrtivörur, sápur, hárvörur, herbalife, harðfiskur, notuð föt, handverk, sælgæti, forsala á ballið, hoppukastalar og kökuhlaðborð á Bárunni.
14:00 – Ferðir með einkennisbílum bæjarins (lögreglu-, slökkviliðs-, björgunarsveitar- og sjúkrabíl) í boði fyrir unga jafnt sem aldna.
00:00 – Stórdansleikur með Rokkabillýbandinu ásamt Hreimi Erni og Stefaníu Svavarsdóttur. Miðaverð er 2800 kr. í forsölu og 3000 kr. við inngang. 18 ára aldurstakmark og er það fæðingardagurinn sem gildir.

Sunnudagurinn 21. júlí:
11:00 – Messa í Sauðaneskirkju.
14:00 – Gönguferð. Farið frá skemmunni í Gunnólfsvík. Gengið verður úr Gunnólfsvík í Urðarbala sem er fallegur staður sunnan í fjallinu. Í Gunnólfsvík verða skoðaðar menjar og fræðst um útgerð á fyrri hluta 20. aldar. Stutt og létt ganga, tilvalin fyrir alla fjölskylduna.
20:30 – Kósý kvöld í Þórshafnarkirkju með hljómsveitinni Kjass sem spilar þjóðlög, djass og frumsamið efni. Aðgangseyrir er 1500 kr.

Vatnavextir trufluðu meistaramót í golfi á Dalvík

Eftir snjóþungan vetur og erfitt vor eru náttúruöflin enn að gera kylfingum í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík erfitt fyrir. Hlýindin á Norðurlandi fyrir síðustu helgi urðu til þess að ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að hinum almenna íþróttaáhugamanni á Akureyri hafi fundist sem handboltakappinn Alfreð Gíslason væri vel að því kominn að fá í síðustu viku heiðursviður- kenningu ... Lesa »

Hin sanna náttúra

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir er kundalini jógakennari og hefur haldið fjölbreytta jóga- og hugleiðsluviðburði á Akureyri og víðar um landið í sumar og má þar nefna ... Lesa »

Borgarar með lauk fyrir 4

4x 120gr. borgarar 4x borgarabrauð salt og pipar LAUKUR 1 msk smjör 1 laukur, sneiddur þunnt 1 lárviðarlauf 1 grein timian salt +pipar 2 msk þurrt sherry SÓSA 1 dl ... Lesa »

Tilraunakennd framtíðar-fortíðar fantasía

Myndlistamaðurinn Gústav Geir Bollason og franski vídeólistamaðurinn Clementine Roy vinna nú að spennandi verkefni saman sem þau kalla Carcasse eða Hræ. Um er að ræða stutta kvikmynd sem ... Lesa »

Ferill sem hófst alveg óvart

Sævar Sigurgeirsson er mörgum kunnur. Hans daglegu störf eru við auglýsingagerð en hann er jafnframt einn handritshöfunda áramótaskaupsins síðustu fjögur ár, meðlimur í Ljótu ... Lesa »

Skaupið klikkaður þáttur

Sævar Sigurgeirsson Þingeyingur, meðlimur í Ljótu hálfvitunum og handritshöfundur sem starfað hefur að áramótaskaupinu sl. fjögur ár segir í opnuviðtali í blaðinu í dag að það sé ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Logi Már Einarsson og nýtt deiliskipulag fyrir miðbæ Akureyrar, segir Akureyringur sem sendi blaðinu bréf. „Eftir að hafa horft á Loga Má á N4 lýsa því yfir að það sé í ... Lesa »

Lágheiðin hefur verið opnuð

Vegagerðin hefur nú rutt veginn yfir Lágheiði, en það er gamla leiðin milli Ketiláss og Ólafsfjarðar, eða Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, en vegurinn er ómalbikaður að mestu ... Lesa »

Gæran haldin í fjórða skiptið

Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin fjórða árið í röð í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 15. - 17. ágúst. „Gæran er lítil hátíð sem leggur ... Lesa »

Kátir dagar á Þórshöfn hefjast í dag

Kátir dagar verða haldnir á Þórshöfn um helgina 19.-21. júlí. Að venju verður margt fróðlegt og skemmtilegt í boði fyrir alla aldurshópa. Veðurspá helgarinnar er afar góð. ... Lesa »

Styttist í Eina með öllu

Eins og undanfarin ár munu Akureyringar taka á móti gestum á fjölskylduhátíðinni Ein með öllu um erslunarmannahelgina. Hátíðin er farin að festa sig í sessi á meðal bæjarbúa og ... Lesa »

Bílaflóð í Borgarhlíð

Ég held að ég tali fyrir alla íbúa hérna í Borgarhlíðinni þegar ég segi að við séum búin að fá nóg af því hvað áhorfendur Þórsvallarins hafa litla tillitsemi og leggja í ... Lesa »

Hvar er samviskan?

Nú er ég nýlega flutt hingað norður, u.þ.b. hálft ár síðan. Ég tel mig vera góðan ökumann, ber virðingu fyrir öðrum í umferðinni, legg bíl mínum rétt í stæði, þ.e. gæti ... Lesa »

Vinir Akureyrar gegn kynferðisofbeldi

Vinir Akureyrar, sem eru aðstandendur Einnar með öllu hátíðarinnar sem haldin verður á Akureyri um Verslunarmannahelgina, sendu frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem ítrekuð er sú ... Lesa »

Hjóladagar hefjast í dag

Hjóladagar bifhjólaklúbbsins Tíunnar hefjast í dag með hópakstri sem fer frá Ráðhústorgi kl. 19 og endar með vöfflukaffi á Mótorhjólasafni Íslands. Á dagskrá Hjóladaga eru svo ... Lesa »

Sveitabístró og staðir án stæla

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir gegnir ýmsum embættum og trúnaðarstörfum. Hún er fjárfestir, eigandi Pizza Hut, formaður Félags kvenna í atvinnulífinu og svo hlaut hún nýverið ... Lesa »

Arkitekt ber af sér sakir

Logi Már Einarsson arkitekt á Akureyri segir ekki rétt sem akureyrskur borgari hafði eftir honum og lagði út af með neikvæðum hætti í „Lof og last“ dálki Akureyrar vikublaðs í dag. ... Lesa »

Lengd refsivist eftir slagsmál í fangelsi

Refsifangi sem réðist í fyrrasumar á annan fanga í borðsal Fangelsisins á Akureyri hefur í Héraðsdómi verður dæmdur til að afplána einn mánuð aukalega vegna brots síns. Hann þarf ... Lesa »

Misjafnar reglur um vinnuskóla

Í yfirliti sem Akureyrarbær hefur unnið um samanburð stærstu sveitarfélaga á launum ungmenna í vinnuskólanum vegna fréttar blaðsins í síðustu viku kemur í ljós að Fjarðabyggð ... Lesa »

Óánægja og vonbrigði

Mikil vonbrigði eru meðal fagaðila í geðheilbrigðismálum eftir að í ljós kom að enginn sótti um stöðu barna- og unglingageðlæknis við Sjúkrahúsið á Akureyri. Enginn barna- og ... Lesa »

Eigum í engin hús að venda

Hjörleifur Finnsson þjóðgarðsvörður á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs telur ekki að einhliða stífni af hálfu hins opinbera hafi valdið samstarfsslitum við Ferðafélag Akureyrar ... Lesa »

Björn Þorláksson

Ferðaþjónusta á krossgötum

Miklar umræður hafa orðið um þyrluflug í ferðaþjónustu hér á landi síðustu vikur. Margir telja að þyrluþjónustan sem starfrækt hefur verið á Akureyri í sumar sé frábær viðbót ... Lesa »

Fjölskyldujóga í Kjarnaskógi

Laugardaginn 20. júlí nk kl. 13-14 verður fjölskyldujógatími á grænu túni í góðu veðri við sólúrið í Kjarnaskógi. Það er Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir, jógakennari, sem ... Lesa »

Háfleygt í Mjólkurbúðinni í Listagilinu

Helen Molin opnar sýninguna Háfleygt í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 20.júlí kl. 14. Helen sýnir 300 mynda seríu sem hún vinnur með blandaðri tækni ... Lesa »

Skoða meira