Logi Már Einarsson arkitekt á Akureyri segir ekki rétt sem akureyrskur borgari hafði eftir honum og lagði út af með neikvæðum hætti í „Lof og last“ dálki Akureyrar vikublaðs í dag. Logi Már segir að þvert á móti hafi hann sagt í tilvitnuðum ummælum sem féllu á N4 að vegna nýs miðbæjarskipulags hafi hann áréttað að ábendingar um bílastæðamál væru teknar alvarlega og bæjaryfirvöld hefðu meira að segja enga heimild til að fella þau út að eigin geðþótta.
„Mér finnst sem unnandi blaðsins rétt að benda á hve varasamt það getur verið að hafa eftir tilvitnun frá aðila sem ekki treystir sér til að koma fram undir nafni. Er það ekki einmitt þessi illræmda kranablaðamennska sem þið metnaðarfyllri blaðamenn landsins fordæmið?“
„Deiliskipulag í miðbænum verður seint óumdeilt og sífellt uppspretta ólíkra sjónarmiða bæjarbúa. Það er hins vegar líklegra að það heppnist vel ef umræðan er byggð á sanngirni og réttum upplýsingum,“ segir Logi Már.


