Last fær Logi Már Einarsson og nýtt deiliskipulag fyrir miðbæ Akureyrar, segir Akureyringur sem sendi blaðinu bréf. „Eftir að hafa horft á Loga Má á N4 lýsa því yfir að það sé í góðu lagi að fækka bílastæðum í miðbæ Akureyrar um helming þá hreinlega kviknaði í mér af reiði. Ég er þessi venjulegi maður sem vinn frá 9 til 5 og hef þar af leiðandi bara einn klukkutíma(frá 17-18) til þess að versla. Í nánast hvert einasta skipti sem ég ætla að versla í miðbæ Akureyrar þá þarf ég að keyra í marga hringi um bílastæðin til þess að fá stæði, og á svo bara 30 til 40 mínútur eftir til að sinna mínum erindum, ef ég finn á annað borð bílastæði. Mér finnst afstaða Loga Más vera: „Hættið að koma í miðbæinn og verslið bara á Glerártorgi, því þar er nóg af bílastæðum,“ segir Akureyringurinn og er mikið niðri fyrir…
Lof fær Akureyrarkirkja fyrir að bjóða Peter Máté píanóleikara að spila á Shigaru Kawai flygilinn úr Ketilhúsinu. Svo skrifar tónlistarunnandi sem skrifaði blaðinu bréf. „Flygillinn hljómaði mjög vel í kikjunni í höndum Peters sem lék við hvurn sinn fingur og heillaði áheyrendur með innihaldsríkum píanóleik. Akureyrarkirkja hentar greinilega vel til píanótónleika og vonandi færi flygillinn að vera í kirkjunni þar til nýr hefur verið keyptur þangað,“ skrifar Akureyringurinn.
Last fær Kristján Þór Júlíusson fyrir hugmyndir um að einkavæða heilbrigðisþjónustuna. Svo skrifar kona, starfmaður á FSA, í bréfi til blaðsins, en hún segist óttast hugmyndir ráðherrans mjög. Hún bendir á að rökin fyrir einkavæðingu bankanna hafi verið sú að einkaframtakið sé hagkvæmara og skilvirkara en ríkisrekstur og nákvæmlega sömu rök noti Kristján Þór nú. „Er ekki nóg komið af helvítis frjálshyggju og kollsteypum? Einn helsti auður Íslendinga felst í ríkisrekinni heilbrigðisþjónustu þar sem jöfnuður skal hafður að leiðarljósi, ólíkt heilbrigðiskerfum þar sem hinir ríkari geta keypt sér þjónustu umfram hina snauðari”, skrifar konan…


