Vatnavextir trufluðu meistaramót í golfi á Dalvík

Vatnavextir trufluðu meistaramót í golfi á Dalvík

Mikið vatn var á Arnarholtsvelli sl. helgi. Mynd af vef golfklúbbsins Hamars

Eftir snjóþungan vetur og erfitt vor eru náttúruöflin enn að gera kylfingum í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík erfitt fyrir. Hlýindin á Norðurlandi fyrir síðustu helgi urðu til þess að Svarfaðardalsá, sem rennur meðfram Arnarholtsvelli, flæddi yfir bakka sína og tók að renna inn á golfvöllinn um það bil sem síðustu holl voru að leggja af stað í meistaramóti Hamars.

Þegar komið var að því að spila seinni hringinn var komið mikið vatn á 1., 2. og 9. braut svo erfitt var fyrir kylfinga að komast um völlinn. „Brugðu sumir á það ráð að fara úr skóm og sokkum og vaða pollana á meðan aðrir kölluðu Jón vallarstjóra út á vallarbílnum og létu hann ferja sig yfir, þar sem ekki var hægt að komast þurrum fótum að fyrstu flöt og öðrum teig,“ segir á vef golfklúbbsins.

Fresta þurfti leik á föstudag vegna bleytunnar en þó tókst að klára mótið um helgina. Klúbbmeistarar urðu Heiðar Davíð Bragason og Ólöf María Einarsdóttir.

Drusluganga á Akureyri

Laugardaginn 27. júlí verða Druslugöngur gengnar á Akureyri, í Reykjavík og hugsanlega á fleiri stöðum á landinu. Þetta er þriðja árið sem Druslugöngur fara fram víða um heim og ... Lesa »

Útilegustemmning í miðbænum í fyrramálið

15 - 16 ára ungmenni í Skapandi sumarstörfum á Akureyri ætla að bjóða Akureyringum og gestum bæjarins í íslenska útilegustemningu með lopapeysum, kassagítar og brekkusöng, ... Lesa »

4500 manns á Húnatónleikunum

Talið er að um 4.500 manns hafi verið við Torfunefsbryggjuna þegar Áhöfnin á Húna hélt þar tónleika á laugardagskvöldið. Veðrið lék við tónleikagesti og notaleg fjölskyldustemning ... Lesa »

Minningarleikur um Hans Ágúst

Á morgun, þriðjudaginn 23. júlí, kl 19:00, mun Dalvík/Reynir leika minningarleik gegn Magna frá Grenivík á Dalvíkurvelli. Leikurinn verður í minningu um Hans Ágúst Guðmundsson Beck ... Lesa »

Veggverk á Siglufirði

Verkefnið Reitir er alþjóðleg listasmiðja sem haldin var á Siglufirði í júlí og 30 einstaklingar víðsvegar að úr heiminum tóku þátt í. Reitir byggja á þeirri hugmynd að með ... Lesa »

Hefðarferð á Súlur

Fimmtudagskvöldið 25. júlí verður farin svokölluð Hefðarferð á Súlur. Það eru Minjasafnið á Akureyri og Icelandair hótel Akureyri sem standa fyrir ferðinni en stefnt er á að ... Lesa »

Vatnavextir trufluðu meistaramót í golfi á Dalvík

Eftir snjóþungan vetur og erfitt vor eru náttúruöflin enn að gera kylfingum í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík erfitt fyrir. Hlýindin á Norðurlandi fyrir síðustu helgi urðu til þess að ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að hinum almenna íþróttaáhugamanni á Akureyri hafi fundist sem handboltakappinn Alfreð Gíslason væri vel að því kominn að fá í síðustu viku heiðursviður- kenningu ... Lesa »

Hin sanna náttúra

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir er kundalini jógakennari og hefur haldið fjölbreytta jóga- og hugleiðsluviðburði á Akureyri og víðar um landið í sumar og má þar nefna ... Lesa »

Borgarar með lauk fyrir 4

4x 120gr. borgarar 4x borgarabrauð salt og pipar LAUKUR 1 msk smjör 1 laukur, sneiddur þunnt 1 lárviðarlauf 1 grein timian salt +pipar 2 msk þurrt sherry SÓSA 1 dl ... Lesa »

Tilraunakennd framtíðar-fortíðar fantasía

Myndlistamaðurinn Gústav Geir Bollason og franski vídeólistamaðurinn Clementine Roy vinna nú að spennandi verkefni saman sem þau kalla Carcasse eða Hræ. Um er að ræða stutta kvikmynd sem ... Lesa »

Ferill sem hófst alveg óvart

Sævar Sigurgeirsson er mörgum kunnur. Hans daglegu störf eru við auglýsingagerð en hann er jafnframt einn handritshöfunda áramótaskaupsins síðustu fjögur ár, meðlimur í Ljótu ... Lesa »

Skaupið klikkaður þáttur

Sævar Sigurgeirsson Þingeyingur, meðlimur í Ljótu hálfvitunum og handritshöfundur sem starfað hefur að áramótaskaupinu sl. fjögur ár segir í opnuviðtali í blaðinu í dag að það sé ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Logi Már Einarsson og nýtt deiliskipulag fyrir miðbæ Akureyrar, segir Akureyringur sem sendi blaðinu bréf. „Eftir að hafa horft á Loga Má á N4 lýsa því yfir að það sé í ... Lesa »

Lágheiðin hefur verið opnuð

Vegagerðin hefur nú rutt veginn yfir Lágheiði, en það er gamla leiðin milli Ketiláss og Ólafsfjarðar, eða Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, en vegurinn er ómalbikaður að mestu ... Lesa »

Gæran haldin í fjórða skiptið

Tónlistarhátíðin Gæran verður haldin fjórða árið í röð í húsakynnum Loðskinns á Sauðárkróki, dagana 15. - 17. ágúst. „Gæran er lítil hátíð sem leggur ... Lesa »

Kátir dagar á Þórshöfn hefjast í dag

Kátir dagar verða haldnir á Þórshöfn um helgina 19.-21. júlí. Að venju verður margt fróðlegt og skemmtilegt í boði fyrir alla aldurshópa. Veðurspá helgarinnar er afar góð. ... Lesa »

Styttist í Eina með öllu

Eins og undanfarin ár munu Akureyringar taka á móti gestum á fjölskylduhátíðinni Ein með öllu um erslunarmannahelgina. Hátíðin er farin að festa sig í sessi á meðal bæjarbúa og ... Lesa »

Bílaflóð í Borgarhlíð

Ég held að ég tali fyrir alla íbúa hérna í Borgarhlíðinni þegar ég segi að við séum búin að fá nóg af því hvað áhorfendur Þórsvallarins hafa litla tillitsemi og leggja í ... Lesa »

Hvar er samviskan?

Nú er ég nýlega flutt hingað norður, u.þ.b. hálft ár síðan. Ég tel mig vera góðan ökumann, ber virðingu fyrir öðrum í umferðinni, legg bíl mínum rétt í stæði, þ.e. gæti ... Lesa »

Vinir Akureyrar gegn kynferðisofbeldi

Vinir Akureyrar, sem eru aðstandendur Einnar með öllu hátíðarinnar sem haldin verður á Akureyri um Verslunarmannahelgina, sendu frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem ítrekuð er sú ... Lesa »

Hjóladagar hefjast í dag

Hjóladagar bifhjólaklúbbsins Tíunnar hefjast í dag með hópakstri sem fer frá Ráðhústorgi kl. 19 og endar með vöfflukaffi á Mótorhjólasafni Íslands. Á dagskrá Hjóladaga eru svo ... Lesa »

Sveitabístró og staðir án stæla

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir gegnir ýmsum embættum og trúnaðarstörfum. Hún er fjárfestir, eigandi Pizza Hut, formaður Félags kvenna í atvinnulífinu og svo hlaut hún nýverið ... Lesa »

Arkitekt ber af sér sakir

Logi Már Einarsson arkitekt á Akureyri segir ekki rétt sem akureyrskur borgari hafði eftir honum og lagði út af með neikvæðum hætti í „Lof og last“ dálki Akureyrar vikublaðs í dag. ... Lesa »

Lengd refsivist eftir slagsmál í fangelsi

Refsifangi sem réðist í fyrrasumar á annan fanga í borðsal Fangelsisins á Akureyri hefur í Héraðsdómi verður dæmdur til að afplána einn mánuð aukalega vegna brots síns. Hann þarf ... Lesa »

Skoða meira