Yfirlitsmynd af minjasvæðinu á Gásum þar sem tóftir miðaldakaupstaðarins eru vel sýnilegar. Ljósmyndari: Hörður Geirsson
Hvað áttu Þórður kakali og Guðmundur dýri sameiginlegt? Hvað voru Gásir og hverjir komu þangað og hvað gerðu þeir? Langar þig að kynnast sögu miðaldakaupstaðarins á Gásum í Eyjafirði? Komdu þá í gönguferð um minjasvæði þessa forna kaupstaðar fimmtudagskvöldið 18. júlí kl 20.
Miðaldakaupstaðurinn er vel skrásettur í rituðum heimildum og fornleifarannsóknir hafa bæði staðfest það sem þar stendur og varpað nýju ljósi á þennan forna verslunarstað.
Gangan hefst á bílastæðinu við Gásir og tekur klukkustund. Leiðsögumaður er Sigrún Birna Óladóttir. Ekkert þátttökugjald.
Gásir er 11 km norðan við Akureyri, afrein við Hlíðarbæ af þjóðvegi 1.
Miðaldadagar verða haldnir á Gásum um helgina og hefjast 19. júlí. Þar verður líf í miðaldakaupstaðnum Gásum sviðsett fyrir gesti og gangandi. Þá verða hamarshögg járnsmiðs, háreysti kaupmanna, ljúf tónlist, matarilmur og brennisteinsvinnsla hluti af upplifun þeirra sem sækja Gásir heim.
Nánari upplýsingar má finna á vef Gásakaupstaðar


