Atvinnuleysi á Akureyri mældist 3% í júnímánuði og er það 0,4% minna en í júní 2012. Mest er atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 20-34 ára og er sá hópur yfir helmingur atvinnuleitenda í bænum. Atvinnuleysi á landsvísu mælist nú 3,9%.
Þegar litið er til starfsgreina er verkafólk verst útsett fyrir atvinnuleysi eða 29% af heildarfjölda atvinnuleitenda á Akureyri. Starfsfólk í þjónustu, sölu- og afgreiðslustörfum er 26% af þeim sem eru í atvinnuleit. Minnst er atvinnuleysið meðal skrifstofufólks en sá hópur er 4% af þeim sem eru í atvinnuleit.
Yfir helmingur þeirra sem eru atvinnulausir á Akureyri hafa aðeins lokið grunnskólamenntun, eða 54%. 16% hafa lokið háskólamenntun. 56% hafa verið án vinnu í minna en 6 mánuði en 54, eða 15%, teljast til langtímaatvinnulausra og hafa þá verið án vinnu í meira en 12 mánuði.
Konur eru nú 55% atvinnuleitenda en karlar 45%. Í kringum áramótin 2008/2009, þegar atvinnuleitendum fjölgaði gríðarlega mikið í kjölfar bankahrunsins, voru konur aðeins í kringum 40% en það hefur snúist við og frá júlí 2011 hafa konur verið milli 50-60% atvinnuleitenda. Þetta kemur heim og saman við spár í umræðu þar sem varað var við því að hið opinbera leggi áherslu á að fjármagna framkvæmdir hins opinbera sem eykur fjölda starfa fyrir karlmenn á meðan skorið er niður í umönnun og þjónustu sem eykur atvinnuleysi meðal kvenna.


