Barnadeild FSA fékk ávísun frá Arctic Open golfmótinu

Barnadeild FSA fékk ávísun frá Arctic Open golfmótinu

Um síðustu helgi fór Arctic Open golfmótið fram á Akureyri í 27. sinn. Keppendur voru um 140 og þar af 30 erlendir keppendur. Stemningin var góð, þrátt fyrir smá kulda en keppendum var boðið upp á heitt kakó og norðlenskt soðið brauð með hangikjöti til að halda á sér hita.

Laugardaginn 29. júní sl. fékk barnadeildin afhenta ávísun upp á kr. 550 þúsund frá Arctic Open golfmótinu en á hverju ári gefst keppendum mótsins kostur á því að styrkja gott málefni sem að þessu sinni var barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri.

Dáleiðandi raddir á Akureyri Backpackers

Hljómsveitin Domowe Melodie er sögð ein stærsta uppgvötun síðasta ár í pólsku tónlistarlífi en þau halda tónleika á Akureyri Backpackers fimmtudagskvöldið 12. júlí. Tónleikarnir ... Lesa »

Blómaspjall við leikhúsið á Möðruvöllum

Á fimmtudagskvöld kl. 20 ætla blómaræktunarkonurnar Hjördís Haraldsdóttir frá Baldursheimi og Sesselja Ingólfsdóttir frá Fornhaga í Hörgárdal að selja fjölærar plöntur við ... Lesa »

Tvíburabræðrum boðið að æfa með FC København

Tvíburabræðurnir Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórissynir frá Dalvík munu æfa með unglingaliði FC Kaupmannahafnar í eina viku í byrjun ágúst. Þeir æfa báðir með eldra ári í fjórða ... Lesa »

Umhverfisævintýri í Lystigarðinum

Það var mikið af fólki sem sólaði sig í Lystigarðinum á Akureyri í dag en þeir sem voru þar kl. 14 urðu fyrir þeirri óvæntu ánægju að verða vitni að lokaæfingu (generalprufu) ... Lesa »

Veðrið breytir plönum

„Það er bara ekki hægt annað en að nýta þetta dásamlega veður til hins ýtrasta,“ segir Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir sem stendur fyrir gong-slökun í sundlauginni á Þelamörk, ... Lesa »

Strandblakvellir í Kjarnaskógi

Sumarið er nýtt til ýmissa framkvæmda í bæjarlandinu og þessa dagana er til að mynda unnið að gerð tveggja strandblakvalla í keppnisstærð í Kjarnaskógi. Áætlað er að þeir verði ... Lesa »

Dalsbrautin vígð á fimmtudag

Suðurhluti Dalsbrautar verður formlega vígður á fimmtudaginn kl. 16.30 þegar klippt verður á borða við gangbrautarljósin við Lundarskóla og síðan haldið fylktu liði suður götuna. ... Lesa »

Gongslökun og hugleiðsla í sundlauginni á Þelamörk

Fimmtudagskvöldið 11. júlí kl. 22-23 Miðvikudagskvöldið 10. júlí kl. 22-23 verður sérstakur viðburður í sundlauginni á Þelamörk en það er jógakennarinn Arnbjörg Kristín ... Lesa »

Boðið upp á hvannar-sushi í Hrísey

Hríseyjarhátíðin fer fram um næstu helgi, 12.-14. júlí, og eru nú eyjaskeggjar á fullu í undirbúningi og mikil stemmning í eyjunni. „Það eru allir eyjarskeggjar saman í þessu og í ... Lesa »

Minnast Þjóðverja sem hurfu með dulúðlegum hætti í Öskju

Á morgun, miðvikudaginn 10. júlí – miðvikudagur verður svokallaður Knebelsdagur við Öskju en þá fer fram árleg minningarganga til heiðurs tveim Þjóðverjum sem hurfu með dulúðlegum ... Lesa »

Fiskeldið Haukamýri stækkar

Fiskeldisfyrirtækið Haukamýri við Húsavík hefur nú fengið leyfi til að stækka framleiðslugetu sína upp í 450 tonn af bleikju og laxaseiðum á ári en hingað til hefur framleiðslan ... Lesa »

Hús vikunnar: Hamrar I og II

Í bæjarlandi Akureyrar hafa löngum verið mörg býli, sum stórbýli en önnur minni en eðlilega hefur þeim fækkað mikið eftir því sem þéttbýlið hefur aukist. Flest þessara býla hafa ... Lesa »

Formenn stéttarfélaga skoða vinnusvæði við Vaðlaheiðargöng

Í morgun fór Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, ásamt nokkrum öðrum forsvarsmönnum stéttarfélaga á svæðinu í heimsókn á vinnusvæðið við Vaðlaheiðargöng. Jón Leví ... Lesa »

Hafdís með þrjá sigra á landsmóti UMFÍ og landsmótsmet

Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttakona úr Ungmennafélagi Akureyrar, sigraði í þremur einstaklingsgreinum á Landsmóti UMFÍ á Selfossi. Hún sigraði bæði í 100 og 200 metra ... Lesa »

Þorri Hringsson sýnir í Bergi

Í júlí mun listmálarinn Þorri Hringsson sýna verk sín í salnum í Bergi Menningarhúsi á Dalvík. Flest listaverkanna eru olíumyndir ásamt teikningum. Myndirnar eru landslagsmyndir sem ... Lesa »

Halla Sif hættir sem framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar

Halla Sif, framkvæmdastjóri GA, hefur óskað eftir því við stjórn klúbbsins að láta af störfum til að takast á við ný verkefni. Stjórn hefur orðið við þessari ósk, en jafnframt ... Lesa »

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju verða að venju alla sunnudaga í júlímánuði og fjölbreytnin að vanda í fyrirrúmi. Á fyrstu tónleikunum, sem verða í dag, sunnudaginn 7. júlí kl. 17, ... Lesa »

Snjóaði í fjöll á Norðurlandi í nótt

Ekki var hátt hitastig á Norðurlandi í gærkvöldi og nótt og mældist við frostmark á Vatnsskarði. Heldur hlýrra var þó hér við Eyjafjörðinn og mældist lægst 1 gráða í gærkvöldi ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Af ást og ótta

Ég er ein þeirra sem reyri börnin niður í nákvæmlega rétta tegund barnabílstóla fyrir ökuferð, set þau í björgunarvesti fyrir bátsferð og reiðhjólahjálm á kollinn fyrir ... Lesa »

Köld grænmetissúpa

Það er dásamlegt að fá sér kalda og ferska grænmetissúpu á heitum sumardegi. Þessi súpa er frekar gróft Gazpacho, sveitaleg köld súpa, full af bragði og mettandi. Hún er frábær sem ... Lesa »

Brad Pitt og hjónabandið

Snerting er máttug tjáning. Enn man ég stundirnar með pabba mínum inn á Landakotsspítala þegar lögheimili hans hafði verið endanlega flutt yfir í Grænaland gleymskunnar. Enn man ég þær ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að starfsfólki FSA á Akureyri hafi ekki komið á óvart að lesa það í Akureyri vikublaði að Halldór Jónsson skyldi ekki snúa aftur á forstjórastól hjá spítalanum. ... Lesa »

Sparisjóðir Svarfdæla og Þórshafnar sameinaðir

Sparisjóður Þórshafnar og Sparisjóður Svarfdæla, Dalvík hafa nú sameinast í einn sem bera mun nafnið Sparisjóður Norðlendinga. Þetta var samþykkt samróma á aðalfundi sparisjóðanna ... Lesa »

Menn bara gera það sem þeim dettur í hug

Ásbjörn Björgvinsson hefur yfirgefið Norðurland og er fluttur suður á höfuðborgarsvæðið þar sem hans meginstörf felast í formennsku fyrir Ferðamálasamtök Íslands. Ástin laðaði ... Lesa »

Innsetning á Hjalteyri

Elísabet Brynhildardóttir, Guðrún Benónýsdóttir og Selma Hreggviðsdóttir efna til innsetningar Á hjalteyri sem þær kalla verksmiðjuna og verður sýningin opnuð 5. júlí nk. kl. 17. Í ... Lesa »

Skoða meira