Tvíburabræðurnir Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórissynir frá Dalvík munu æfa með unglingaliði FC Kaupmannahafnar í eina viku í byrjun ágúst. Þeir æfa báðir með eldra ári í fjórða flokki.
Aðdragandinn var sá að Barna-og unglingaráð Dalvíkur sendi Nökkva í knattspyrnuskóla KSÍ á Laugarvatni um miðjan júní og þar vakti hann athygli íslensks umboðsmanns og útsendara FCK. Sá setti sig í samband við foreldra Nökkva og yfirþjálfara Dalvíkur og fékk að koma í heimsókn til að kynna áhuga sinn. Og ekki minnkaði áhuginn þegar hann uppgötvaði að Nökkvi á tvíburabróður með mikla fótboltahæfileika líka.
Úr varð þetta boð um viku æfingabúðir með unglingaliði FCK. „Þetta eru mjög spennandi tímar fyrir strákana og ekki síður fyrir litla klúbbinn okkar Dalvík og verður gaman að fylgjast með næstu tvö árin en ekki er heimilt að gera samninga við leikmenn fyrr en þeir ná 16 ára aldri. Barna-og ungl.ráð UMFS óskar Nökkva og Þorra og fjölskyldu þeirra til hamingju og ekki síður þjálfara þeirra Heiðari Birni Torleifssyni. Okkur er ljóst að svona árangur næst fyrst og fremst með brennandi áhuga og þrotlausri vinnu þeirra aðila sem að málinu koma,“ segir á vef Íþróttafélagsins Dalvík.




