Sumartónleikar í Akureyrarkirkju verða að venju alla sunnudaga í júlímánuði og fjölbreytnin að vanda í fyrirrúmi. Á fyrstu tónleikunum, sem verða í dag, sunnudaginn 7. júlí kl. 17, mun Guðný Einarsdóttir leika á orgel Akureyrarkirkju. Guðný er einn af Íslands bestu orgelleikurum í dag en hún stundaði nám í Kaupmannahöfn og París. Undanfarin ár hefur hún leikið reglulega á orgel Hallgrímskirkju í tónleikaröðinni „Alþjóðlegt orgelsumar“, leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Ísland og leikið á tónleikum með fjölda annarra tónlistarmanna auk þess að leika inn á hljómdiska.
Sunnudaginn 14. júlí verða píanótónleikar með Peter Maté, 21. júlí tónleikar með Kristjönu Arngrímsdóttur söngkonu og að lokum sunnudaginn 28. júlí tónleikar með Sigurði Flosasyni saxófónleikara og Gunnari Gunnarssyni orgelleikara.
Aðgangur er ókeypis á alla tónleikana



