Brad Pitt og hjónabandið

Brad Pitt og hjónabandið

Hildur Eir Bolladóttir

Snerting er máttug tjáning. Enn man ég stundirnar með pabba mínum inn á Landakotsspítala þegar lögheimili hans hafði verið endanlega flutt yfir í Grænaland gleymskunnar. Enn man ég þær stundir og samt voru samtölin fá og þögnin svo sterk, en ég man snertinguna þegar ég lagði hönd mína í lófa hans, strauk skeggvaxinn vangann og kyssti hann á kinn. Og það sem ég man við þessa snertingu er að þá þekktumst við aftur um stund. Í þau fáu skipti sem ég heyrði hann nefna nafnið mitt og það barst eins og bergmál frá fjöllum í kring eða eins og eina orðið sem er hrópað í mannlausri borg, þá var það þegar við snertumst. Orð eru máttug, hlý, beitt, falleg, ljót, lygin, sönn og vitur en þau segja samt ekkert í líkingu við snertingu og snerting lýgur aldrei hún er bara það sem hún er. Þess vegna er hún máttugri en orð og þess vegna er hún grundvöllur hjónbandsins og besta leiðin til að varðveita það. Já hvaða tvö andartök hrífa mest við hjónavígslu? Er það ekki það þegar hjónin takast í hendur til að innsigla heitin sín um leið og vígslumaðurinn lýsir því yfir að þau séu hjón og svo þegar þau kyssast? Þá hrífumst við með, grátum, hlæjum og klöppum, af því að snerting er eitthvað sem allir menn skilja.

Þess vegna er svo mikilvægt að snerta þá sem standa manni næst, makann, börnin, foreldra og alla sem standa þér nærri og þú vilt að þekki ást þína. Þær aðstæður geta orðið sem útiloka alla tjáningu nema þá sem verður með snertingu, t.d. alvarleg veikindi eða langvinn deila sem enginn kann að vinda ofan af með orðum, engin veit hvar hófst eða hvernig á að ræða. Stundum er snerting eina leiðin til að brjóta múra og hjálpa fólki til að tjá sig, því einhvern veginn er fáránlegt að faðmast fyrst og höggva svo.

Ég hefði aldrei trúað því fyrr en nú að ég ætti eftir að vitna í Hollywood hjartaknúsarann Brad Pitt í kirkjulegu samhengi. En af hverju ekki? Hann er jú bara maður eins og ég og þú. Ég tók nefnilega eftir frétt á vefmiðli á dögunum sem fjallaði um afstöðu hans til konu sinnar Angelinu Jolie en þau eru eins og flestir vita eitt frægasta par veraldar. Það fríar þau hins vegar ekki frá vandamálum og þjáningu, þó oft mætti ætla annað á ímyndinni sem sköpuð er í kringum einstaklinga eins og þau. En sumsé þó að viðtalið sem bar fyrirsögnina „Brad Pitt fer fögrum orðum um sína heittelskuðu Angelinu Jolie“ hafi ekki verið að öllu leyti í tengslum við okkar raunveruleika þá var einn punktur í því mjög mikilvægur. Pitt segir þarna frá því þegar kona hans var að ganga í gegnum mjög erfiða tíma sem birtust í margvíslegum kvíða og ótta við að gera mistök, svefnleysi og almennri vanlíðan eins og getur hent hvern einasta mann og hann lýsir því hvernig ein eftirsóttasta leikkona veraldar missti trúna á sjálfa sig sem var þess valdandi að samskipti þeirra hjóna versnuðu og hann var farinn að sjá fyrir sér skilnað. Þá hafi hann hins vegar ákveðið innra með sjálfum sér að sækja fram í stað þess að hörfa, hann ákvað að reisa konu sína við í stað þess að yfirgefa hana. Hann fór að leggja meira á sig til að sýna ást sína og trú og smátt og smátt fór þeim báðum að líða betur. Og jafnvel þótt að leiðirnar sem hann nefnir í viðtalinu eigi kannski ekki alveg samhljóm við líf venjulegs fólks þá er hugsunin að baki þessu nokkuð sem allir geta notað. Það er nefnilega þannig að í hjónabandinu koma lægðir í lífi beggja aðila, það er jafn öruggt og að sólin kemur upp að morgni dags og þegar það gerist hjá öðru í einu þá er svo mikilvægt að hinn aðilinn sé ekki víkjandi, fari ekki að hugsa, af hverju getur maki minn ekki verið eins og hann var, fyrir mig? Heldur hugsi í staðinn, hvað get ég gert til að maki minn verði sá eða sú sem hann var? Þetta snýst eiginlega um að að líta sjálfan sig sem viðgerðarmann, við þurfum nefnilega stundum viðgerðarhlé í lífi okkar, rétt eins og í Formúlunni. Það þýðir ekki að viðkomandi eigi að kaupa dýrar gjafir eða tala bara um maka sinn í fjölmiðlum eins og Pitt gerði ásamt fleiri hlutum sem voru vissulega gagnlegir, heldur snýst þetta um að gefa af styrk sínum, hrósa meira, snerta meira, hlusta meira og hafa frumkvæði að lausnum, af því að hamingja maka þíns er á endanum hamingja þín. Hjónabandið er alltaf gagnvirkur veruleiki og dásamlegur veruleiki ef fólk er tilbúið að vera til staðar bæði á góðum og vondum dögum, því geta meira að segja vondir dagar endað á því að verða nokkuð góðir.

Að lokum, snerting er máttug tjáning. Ef snerting getur sent flöskuskeyti yfir í Grænaland gleymskunnar og vakið veika til meðvitundar um ástvini þeirra, þá getur hún allt. Þá er hún svarið.

Umhverfisævintýri í Lystigarðinum

Það var mikið af fólki sem sólaði sig í Lystigarðinum á Akureyri í dag en þeir sem voru þar kl. 14 urðu fyrir þeirri óvæntu ánægju að verða vitni að lokaæfingu (generalprufu) ... Lesa »

Veðrið breytir plönum

„Það er bara ekki hægt annað en að nýta þetta dásamlega veður til hins ýtrasta,“ segir Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir sem stendur fyrir gong-slökun í sundlauginni á Þelamörk, ... Lesa »

Strandblakvellir í Kjarnaskógi

Sumarið er nýtt til ýmissa framkvæmda í bæjarlandinu og þessa dagana er til að mynda unnið að gerð tveggja strandblakvalla í keppnisstærð í Kjarnaskógi. Áætlað er að þeir verði ... Lesa »

Dalsbrautin vígð á fimmtudag

Suðurhluti Dalsbrautar verður formlega vígður á fimmtudaginn kl. 16.30 þegar klippt verður á borða við gangbrautarljósin við Lundarskóla og síðan haldið fylktu liði suður götuna. ... Lesa »

Gongslökun og hugleiðsla í sundlauginni á Þelamörk

Fimmtudagskvöldið 11. júlí kl. 22-23 Miðvikudagskvöldið 10. júlí kl. 22-23 verður sérstakur viðburður í sundlauginni á Þelamörk en það er jógakennarinn Arnbjörg Kristín ... Lesa »

Boðið upp á hvannar-sushi í Hrísey

Hríseyjarhátíðin fer fram um næstu helgi, 12.-14. júlí, og eru nú eyjaskeggjar á fullu í undirbúningi og mikil stemmning í eyjunni. „Það eru allir eyjarskeggjar saman í þessu og í ... Lesa »

Minnast Þjóðverja sem hurfu með dulúðlegum hætti í Öskju

Á morgun, miðvikudaginn 10. júlí – miðvikudagur verður svokallaður Knebelsdagur við Öskju en þá fer fram árleg minningarganga til heiðurs tveim Þjóðverjum sem hurfu með dulúðlegum ... Lesa »

Fiskeldið Haukamýri stækkar

Fiskeldisfyrirtækið Haukamýri við Húsavík hefur nú fengið leyfi til að stækka framleiðslugetu sína upp í 450 tonn af bleikju og laxaseiðum á ári en hingað til hefur framleiðslan ... Lesa »

Hús vikunnar: Hamrar I og II

Í bæjarlandi Akureyrar hafa löngum verið mörg býli, sum stórbýli en önnur minni en eðlilega hefur þeim fækkað mikið eftir því sem þéttbýlið hefur aukist. Flest þessara býla hafa ... Lesa »

Formenn stéttarfélaga skoða vinnusvæði við Vaðlaheiðargöng

Í morgun fór Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, ásamt nokkrum öðrum forsvarsmönnum stéttarfélaga á svæðinu í heimsókn á vinnusvæðið við Vaðlaheiðargöng. Jón Leví ... Lesa »

Hafdís með þrjá sigra á landsmóti UMFÍ og landsmótsmet

Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttakona úr Ungmennafélagi Akureyrar, sigraði í þremur einstaklingsgreinum á Landsmóti UMFÍ á Selfossi. Hún sigraði bæði í 100 og 200 metra ... Lesa »

Þorri Hringsson sýnir í Bergi

Í júlí mun listmálarinn Þorri Hringsson sýna verk sín í salnum í Bergi Menningarhúsi á Dalvík. Flest listaverkanna eru olíumyndir ásamt teikningum. Myndirnar eru landslagsmyndir sem ... Lesa »

Halla Sif hættir sem framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar

Halla Sif, framkvæmdastjóri GA, hefur óskað eftir því við stjórn klúbbsins að láta af störfum til að takast á við ný verkefni. Stjórn hefur orðið við þessari ósk, en jafnframt ... Lesa »

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju verða að venju alla sunnudaga í júlímánuði og fjölbreytnin að vanda í fyrirrúmi. Á fyrstu tónleikunum, sem verða í dag, sunnudaginn 7. júlí kl. 17, ... Lesa »

Snjóaði í fjöll á Norðurlandi í nótt

Ekki var hátt hitastig á Norðurlandi í gærkvöldi og nótt og mældist við frostmark á Vatnsskarði. Heldur hlýrra var þó hér við Eyjafjörðinn og mældist lægst 1 gráða í gærkvöldi ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Af ást og ótta

Ég er ein þeirra sem reyri börnin niður í nákvæmlega rétta tegund barnabílstóla fyrir ökuferð, set þau í björgunarvesti fyrir bátsferð og reiðhjólahjálm á kollinn fyrir ... Lesa »

Köld grænmetissúpa

Það er dásamlegt að fá sér kalda og ferska grænmetissúpu á heitum sumardegi. Þessi súpa er frekar gróft Gazpacho, sveitaleg köld súpa, full af bragði og mettandi. Hún er frábær sem ... Lesa »

Brad Pitt og hjónabandið

Snerting er máttug tjáning. Enn man ég stundirnar með pabba mínum inn á Landakotsspítala þegar lögheimili hans hafði verið endanlega flutt yfir í Grænaland gleymskunnar. Enn man ég þær ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að starfsfólki FSA á Akureyri hafi ekki komið á óvart að lesa það í Akureyri vikublaði að Halldór Jónsson skyldi ekki snúa aftur á forstjórastól hjá spítalanum. ... Lesa »

Sparisjóðir Svarfdæla og Þórshafnar sameinaðir

Sparisjóður Þórshafnar og Sparisjóður Svarfdæla, Dalvík hafa nú sameinast í einn sem bera mun nafnið Sparisjóður Norðlendinga. Þetta var samþykkt samróma á aðalfundi sparisjóðanna ... Lesa »

Menn bara gera það sem þeim dettur í hug

Ásbjörn Björgvinsson hefur yfirgefið Norðurland og er fluttur suður á höfuðborgarsvæðið þar sem hans meginstörf felast í formennsku fyrir Ferðamálasamtök Íslands. Ástin laðaði ... Lesa »

Innsetning á Hjalteyri

Elísabet Brynhildardóttir, Guðrún Benónýsdóttir og Selma Hreggviðsdóttir efna til innsetningar Á hjalteyri sem þær kalla verksmiðjuna og verður sýningin opnuð 5. júlí nk. kl. 17. Í ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Bílslys á Leiruvegi - ökumaður í annarlegu ástandi

Á Facebooksíðu lögreglunnar á Akureyri, Dalvík og Fjallabyggð kemur fram að í dag hafi slys sem átti sér stað við brúna á Leiruvegi átt rætur sínar að rekja til fíkniefnaneyslu. ... Lesa »

Íslenski safnadagurinn á sunnudag

Íslenski safnadagurinn er haldinn á sunnudaginn, 7. júlí en söfn um allt land munu taka þátt í deginum. Á Akureyri verður frítt inn á Minjasafnið í tilefni dagsins auk þess sem ... Lesa »

Barnadeild FSA fékk ávísun frá Arctic Open golfmótinu

Um síðustu helgi fór Arctic Open golfmótið fram á Akureyri í 27. sinn. Keppendur voru um 140 og þar af 30 erlendir keppendur. Stemningin var góð, þrátt fyrir smá kulda en keppendum var ... Lesa »

Skoða meira