Heyrst hefur að starfsfólki FSA á Akureyri hafi ekki komið á óvart að lesa það í Akureyri vikublaði að Halldór Jónsson skyldi ekki snúa aftur á forstjórastól hjá spítalanum. Halldór hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands en mjög vandræðalegt hefur verið að fylgjast með því hvernig Bjarni Jónsson, settur forstjóri, hefur ítrekað verið beðinn um að vinna nánast einn dag í einu meðan leitað var leiða bak við tjöldin til að leysa samskiptavanda innan FSA og í raun koma í veg fyrir að Halldór sneri aftur. Hefur heyrst að Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hafi komið að lausn pattstöðunnar og gert vel. Þeir Halldór eru félagar í Sjálfstæðisflokknum, enda Halldór fyrrverandi bæjarstjóri sjálfstæðismanna á Akureyri…
Heyrst hefur að sumir starfsmenn Rúv séu uggandi um sinn hag eftir herta stjórn valdaflokkanna á hinni óháðu ríkisstofnun. Hluti sjálfstæðismanna vill hreinlega leggja stofnunina niður en þekkt er að valdhafar reyni að laga fjölmiðla að eigin stefnu með óttastjórnun eða hóti brottrekstri úr starfi ef fréttamenn eru ekki vilhallir. Hefur heyrst að meðal fréttamanna Rúv, og þá ekki síst þeirra sem teljast sjálfstæðir, rifji menn nú upp þegar Davíð lét ekki duga að hóta að leggja niður Þjóðhagsstofnun heldur framkvæmdi vilja sinn, samfélaginu til mikils skaða. Davíð er einmitt í hópi þeirra sem hafa talað fyrir því að loka Ríkisútvarpinu…
Heyrst hefur að nokkur spenna sé meðal norðlenskra fjölmiðla eftir að Eyþing ákvað að styðja aðeins einn fjölmiðil á Norðurlandi með 10 milljóna króna framlagi til að ganga jákvæðra erinda í þágu svæðisins. Hefur heyrst að fulltrúar fjölmiðla sem ekkert fengu hafi gert athugasemdir við Eyþing vegna málsins. Umsýsla opinbers fjár í þessa veruna kann að vera bæði brot á jafnaðarreglu en einnig orkar ekki síður tvímælis að gera samning við einn miðil, N4, til að vinna „jákvæð og skemmtileg“ innslög í áróðursskyni fyrir hið opinbera. Í alþjóðlegum blaðamannaháskólum er kennt að fjölmiðlafólk sem starfar við fréttatengt efni skuli jafnan vera í mildri stjórnarandstöðu við valdhafa hvers tíma, slíkt sé heilbrigðu lýðræði til góðs. Hefur heyrst að hinn algjöri samruni stjórnvalds og fjölmiðils kunni jafnvel að vera í uppsiglingu…



