Á fimmtudagskvöld kl. 20 ætla blómaræktunarkonurnar Hjördís Haraldsdóttir frá Baldursheimi og Sesselja Ingólfsdóttir frá Fornhaga í Hörgárdal að selja fjölærar plöntur við leikhúsið á Möðruvöllum.
„Það verður heitt á könnunni og með því og svo erum við alltaf tilbúnar í blómaspjall,“ segir Hjördís en hún hefur ræktað blóm í Baldursheimi frá árinu 1975. „Þetta er áhugamál númer eitt og frá því ég gróðursetti fyrstu plönturnar hef ég alltaf smá bætt við og núna sái ég sumum en skipti öðrum svo þetta fjölgar sér heilmikið.“
„Við verðum með bæði nytjaplöntur eins og timian, jarðaberja- og hindberjaplöntur og myntu, sem er upplögð í sumardrykkinn, en það verða líka fallegar skrautplöntur.“ Hjördís segir alls ekki vera orðið of seint að setja niður plönturnar núna því þær séu allar í pottum og orðnar ágætlega þroskaðar. „Þetta eru plöntur sem hafa verið ræktaðar úti, ég er með gróðurhús og stundum skýt ég þeim þangað inn ef veðrið er leiðinlegt en annars er ég með alla mína ræktun utandyra“.




