Höfuðstöðvar barnaverndar Norðurþings eru á Húsavík. Þar á bæ fást þau svör ein að ekki sé hægt að ræða einstök mál.
Sjö barna norðlensk móðir var hársbreidd frá því að missa tvö barna sinna frá sér í fóstur eftir að barnaverndaryfirvöld í Þingeyjarsýslu höfðu talið hana vanhæfa sem uppalanda. Mat á móðurinni fór fram skömmu eftir að uppvíst varð um kynferðislega misnotkun sambýlismanns gagnvart dóttur konunnar og segist konan hafa verið í mjög bágbornu ástandi. Nánast tilviljun réð því að konan fékk upplýsingar og lögfræðing í gegnum Aflið á Akureyri, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Eftir að lögfræðingurinn komst í málið breyttu barnaverndaryfirvöld fyrri ákvörðun. Í stað þess að börn hennar tvö yrðu sett í varanlegt fóstur annars staðar dvelja þau nú bæði hjá móður sinni og gengur vel.
Í greinargerð lögmanns konunnar segir að ekki hafi verið réttlætanlegt að taka svo íþyngjandi ákvörðun studda jafn veikum gögnum, enda hefði barnaverndarnefndin ekki rannsakað málið til hlítar heldur aðeins haft til hliðsjónar foreldramat sem gert var á sama tíma og Laufey gekk í gegnum þá miklu erfiðleika sem fylgdu skilnaði við mann sinn og kynferðisbrotum gegn dóttur hennar. Svo fór á endanum að börnin fóru til móður sinnar til Akureyrar þar sem barnaverndarnefnd Akureyrar tók við máli þeirra.
Fulltrúar barnaverndar Norðurþings segjast ekki geta tjáð sig um málið vegna trúnaðar.
Sjá bls. 4 í blaði vikunnar





