Faðir drengs sem þarf að flytja nauðugan milli leikskóla gagnrýnir þá ákvörðun harðlega. Drengurinn hans hefur verið á sama leikskólanum, Álfasteini, frá upphafi sem tilheyrir Hörgárbyggð en er nálægt bæjarmörkunum. Vilji drengsins og foreldra er að hann fái að vera þar áfram en breyting hefur orðið á lögheimili foreldranna sem skýrir það að drengurinn fær að líkindum ekki að vera áfram á þeim leikskóla sem hann kýs.
Faðir drengsins, Gísli Steinar Jóhannesson, segir skýringar yfirvalda þær að málið snúist um niðurgreiðslur, persónupólitík og peninga. „Svörin sem maður fær er að leikskólagjöld eru niðurgreidd og þar virðist bara hver hugsa um sig frekar en að velferð barnanna sé sett í fyrsta sæti.“
Spurður hvort það sé þó e.t.v. skárra að flutningur eigi sér stað nú þegar leikskólabarnið er 4ra ára heldur en síðar ef flutningur er óhjákvæmilegur, þannig að drengurinn geti í leikskóla myndað félagstengsl við önnur börn sem munu fylgja honum áfram í grunnskóla, segir faðirinn að það séu a.m.k. skárri rök en að segja að þetta snúist um peninga. „Mín upplifun er að þetta sé fyrst og fremst peningapólitík og að það sé ekkert verið að hugsa um hagsmuni barnsins eða fólksins í bæjarfélaginu. Það skiptir ekki máli hvort leikskóli er rekinn í sveitarfélaginu eða ekki, alltaf skapast kostnaður við vistun á barni. Ég hef í bréfi til Akureyrarbæjar vísað í barnaverndarlög 1. kafla 1. gr. þar sem segir að beri að búa börnum viðunandi uppeldisaðstæður og gæta velfarnaðar þeirra í hvívetna. Leikskólinn er innan við 1.3 km frá vinnu móðurinnar þannig að þetta gæti ekki verið betra.“
Í svarbréfi frá bænum segir að Akureyrarbær hafi samþykkt undanþágu til að niðurgreiða gjöld fyrir umræddan leikskóladreng um tíma en ekki verði framlenging á því. Er vísað til þess í svarbréfi bæjarins til föðurins, Gísla Steinars, að hann geti haft samband við sveitarstjórann í Hörgársveit til að athuga hvort hann geti gert eitthvað fyrir fjölskylduna.
-BÞ










