„Ég skal segja þér sögu mína. Hún byrjar með dauða tveggja sona minna. Það var skothríð í bænum og sprengjuárás. Báðir synir mínir létust. Stuttu seinna lést Amal, dóttir mín, af sömu orsökum. Um þúsund sprengjur féllu á bæinn þann dag. Hún var sex ára gömul.”
- Za’ahir, sýrlenskur flóttamaður í Líbanon -
Barnaheill – Save the Children og önnur leiðandi mannúðarsamtök hafa sent opið bréf til samningsaðila í Genf II, friðarviðræðum Sýrlands, sem hefjast í Sviss á morgun. Stríðandi fylkingar eru beðnar um að hafa slæma stöðu barna að leiðarljósi.
Meðal þeirra 14 sem skrifa undir bréfið eru Desmond Tutu erkibiskup og friðarverðlaunahafi Nóbels, Antonio Gutteres, yfirmaður Flóttamannastofnunar SÞ, Valerie Amos, yfirmaður mannúðarmála og hjálparstarfs hjá SÞ, David Miliband, fyrrverandi utanríkisráðherra Breta og forseti alþjóðlegrar björgunarnefndar og Margaret Chan, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinn
Þetta er í fyrsta sinn sem helstu mannúðarsamtök heims sameinast um opinbera áskorun til allra þeirra sem koma að málefnum Sýrlands. Grípa verði til aðgerða til að leyfa lífsnauðsynlegum hjálpargögnum að berast til barnanna sem eru innilokuð í Sýrlandi og forða þeim frá því að verða fórnarlömb ofbeldisins.
Yfir ellefu þúsund börn hafa týnt lífi í átökunum, þar af 71% handahófskennt í sprengjuárásum.
Barnaheill – Save the Children eru stærstu sjálfstæðu mannréttindasamtök sem vinna að réttindum barna í heiminum. Samtökin vilja að þátttakendur í Genfarviðræðunum setji vernd barna á oddinn.
Í bréfinu er skorað á stríðandi fylkingar að hlífa börnunum með því að samþykkja að:
• Lífsnauðsynleg hjálpargögn fái að berast til barna
• Skólar og heilbrigðiststofnanir séu ekki skotmörk eða nýtt í hernaðartilgangi
• Sprengjum sé ekki varpað á íbúðabyggð
Í bréfinu segir einnig: „Hvert barn í Sýrlandi sem særist, er drepið eða missir ástvin, er tákn þess að alþjóðasamfélagið hefur brugðist. Við undirrituð skuldbindum okkur hér með til að gerast baráttumenn fyrir sýrlensk börn og tölum fyrir réttindum þeirra við hvert tækifæri. Heil kynslóð glatast vegna ofbeldisins. Við berum öll ábyrgð á því að bjarga þessum börnum.”
Rösklega fjórar milljónir barna hafa neyðst til að flýja heimili sín, þar af yfir ein milljón sem sem hefur flúið land. Mörg barnanna eru skelfingu lostin, svöng og í bráðri þörf fyrir skjól og vernd. Hundruð þúsunda barna eru auk þess innilokuð og búa við skelfilegar aðstæður innan Sýrlands án þess að fá nokkra mannúðaraðstoð.
„Á hverjum degi upplifa börn grimmilegan raunveruleika stríðsátakanna. Þessi harmleikur er af mannavöldum og það er í valdi stríðandi fylkinga að binda enda á hann,” segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.; „Ef samningsaðilar fylgja þessum þremur viðmiðum sem sett eru fram, munu færri börn deyja. Svo einfalt er það.”
Barnaheill - Save the Children auk fleiri hjálparsamtaka, vinna á svæðum beggja fylkinga innan Sýrlands, stundum við afar hættulegar aðstæður til að ná til barna og fjölskyldna þeirra með matvæli, hreint vatn, lyf og hlý föt. Auk þess hjálpa samtökin sýrlenskum börnum og fjölskyldum þeirra í Jórdaníu, Líbanon, Egyptalandi og Írak.
Samtökin hafa náð til 900 þúsund Sýrlendinga, þar af yfir 300 þúsund innan landamæra Sýrlands þar sem starfsfólk okkar og samstarfsaðilar hætta lífi sínu til að koma lífsnauðsynjum til mismunandi svæða í Sýrlandi. Um það bil 4,5 milljónir barna þurfa á hjálp okkar að halda innan Sýrlands.
Samtökin veita nýburamæðrum stuðning til að tryggja að börnin séu heilbrigð og fái næringu.
Sérfræðingateymi Barnaheilla – Save the Children hjálpa börnum einnig að komast yfir það sálræna áfall sem þau hafa orðið fyrir með sálfræðistuðningi og meðferð í gegnum leik, auk þess að hjálpa börnum að halda áfram menntun.








