átta karlar og þrjár konur hafa boðað þátttöku sína í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri til sveitarstjórnarkosninganna í vor.
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, sem fer fram laugardaginn 8. febrúar verða kynntir á fundum í Kaupangi 18. og 25. janúar nk. kl. 11:00. 18. janúar munu fimm frambjóðendur kynna sig, en sex frambjóðendur 25. janúar.
Á fundi 18. janúar kl. 11:00 munu eftirtaldir frambjóðendur flytja framsögu og svara fyrirspurnum:
Ármann Sigurðsson, sjómaður
Bergþóra Þórhallsdóttir, aðstoðarskólastjóri
Gunnar Gíslason, fræðslustjóri
Hjörtur Narfason, framkvæmdastjóri
Sigurjón Jóhannesson, verkfræðingur
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, ritari stjórnar fulltrúaráðs.
Allir velkomnir - boðið upp á léttar veitingar.








