Krafa hefur komið fram um að lögreglan á Akureyri hefji sjálfstæða rannsókn á hvað fór úrskeiðis 5. ágúst sl. þegar flugmaður og sjúkraflutningamaður létust þegar flugvél Mýflugs hrapaði að loknu neyðarflugi. Yfirmaður rannsóknareildar lögreglunnar, Gunnar Jóhannsson, segist ekki skilja þá kröfu.
Óháð eftirlitsstofnun sé að rannsaka málið. Áður hafi lögregla rannsakað flugslysið sjálfstætt en rannsókn hafi verið hætt 11. nóvember sl. enda hafi þá verið metið af hálfu ákæruvalds að frekari rannsókn myndi ekki leiða til sérstakrar málshöfðunar. Af ummælum lögreglu að dæma hefur í fjölmiðlaumfjöllun síðustu vikna ekki komið neitt nýtt fram sem hvetur lögreglu á Akureyri til að taka rannsóknina upp aftur.
Í fréttum hafa komið fram sjónarmið um að furðu sæti að lögregla hafi sem dæmi ekki rætt við Kristján Skjóldal, íbúa á Akureyri, en Kristján sagði m.a. sögu sína í fréttaskýringu á Stöð 2 í síðustu viku. Ástæða þess er að sögn yfirmanns rannsóknardeildar að búið var að ræða við tugi annarra vitna sem öll höfðu svipaða sögu að segja.
Yfirmaður rannsóknardeildar lögreglu bendir á að ef maður aki yfir á rauðu ljósi og valdi öðrum bana þurfi lögregla ekki að ræða við öll 50 vitnin að slysinu ef 10 fyrstu viðmælendur séu samhljóða í frásögn.annsóknarnefnd samgönguslysa mun skoða vinnuhætti Mýflugs fyrir slysið og fyrri atvik sem m.a. fyrrum fluglæknir í sjúkraflugi hefur gagnrýnt. Niðurstaðan getur haft áhrif á hvort aðstandendur höfði einkamál gegn fyrirtækinu.
-BÞ








