Íþróttabandalag Akureyrar boðar til verðlaunahátíðar í Menningarhúsinu Hofi miðvikudaginn 22. janúar kl. 17.00 þar sem lýst verður kjöri íþróttamanns Akureyrar 2013. Jafnframt fá þeir íþróttamenn sem aðildarfélög ÍBA hafa tilnefnt sem sinn íþróttamann ársins 2013 afhentar viðurkenningar.
Við sömu athöfn verða afhentar heiðursviðurkenningar Íþróttaráðs Akureyrarbæjar. Þá verða afhentar viðurkenningar og styrkir til þeirra íþróttafélaga sem áttu landsliðsmenn og Íslandsmeistara á árinu 2013. Þessar viðurkenningar hafa hingað til verið afhentar íþróttafólkinu sjálfu í sérstöku hófi á milli jóla og nýárs, en fyrirkomulagið er nú breytt.
Dagskrá:
Kl. 16.30 Húsið opnað, tónlistarflutningur fram að skipulagðri dagskrá
Kl. 17.00 Dagskrá hefst
- Þröstur Guðjónsson, formaður ÍBA, setur hátíðina
- Tryggvi Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi og formaður Íþróttaráðs Akureyrarbæjar, ávarpar samkomuna
- Kynning á íþróttamönnum aðildarfélaga ÍBA
- Landsliðsfólk 2013, styrkir afhentir forsvarsmönnum íþróttafélaga
- Íslandsmeistarar 2013, viðurkenningar afhentar forsvarsmönnum íþróttafélaga
- Heiðursviðurkenningar Íþróttaráðs Akureyrarbæjar
- Lýst kjöri íþróttamanns Akureyrar 2013
- Þröstur Guðjónsson slítur samkomunni
Íþróttabandalag Akureyrar og íþróttaráð Akureyrarbæjar bjóða bæjarbúum að vera viðstaddir athöfnina og heiðra þannig afreksíþróttafólk bæjarins.








