Lottóslagurinn

Lottóslagurinn
Björn Þorláksson

Björn Þorláksson

Ein af þversögnum samfélagsins er hve opinber umræða snýst að miklu leyti um efnisleg gæði. Samt eru flestir sammála um að hin raunverulegu lífsverðmæti felist í andlegum gæðum, þeim sem ekki kosta peninga. Án andlegrar fullnægju, samsemdar og samhjálpar má efast um að raunverulegri hamingju verði náð. Við getum a.m.k. öll fallist á að án ástar og öryggis fær enginn notið veraldlegra auðæva sem skyldi.

Klassískt dæmi um oftrú á efnislegri hamingju er þegar fólk með veikan bakgrunn vinnur milljarða í erlendum happdrættum. Oftar en ekki bera „vinningshafarnir“ fátt annað en óhamingju úr býtum. Margir verða gjaldþrota á örfáum árum (eins þversagnarkennt og það nú hljómar). Oft fylgja hjónaskilnaðir, alkóhólismi eða annað heilsuleysi. Vinir og ættingjar fara að miða hegðun sína við lottómanninn í von um að fá sinn skerf af kökunni. Það brenglar vináttu og fjölskyldubönd, ekki ósvipað og þegar forríkur ættingi deyr óvænt. Oft kemur fyrir að sorg eftirlifenda finnur sér hvergi samastað vegna deilna um arfinn.

Blessunarlega eru nánast engar líkur á að maður vinni stórvinning í lottóinu. Samt geysast þúsundir Íslendinga inn í sjoppur og söluturna rétt fyrir drátt. Draumur um instant hamingju, falinn í bliki augna. Að kannski takist loks að útrýma skuldunum, fara í utanlandsferð með fjölskylduna, kaupa sér tímabundnar vinsældir, verða mammonískar ofurhetjur í einn dag.

Oft eyða þeir mestu í lottóið sem síst skyldu. Fórna jafnvel matapeningum eða bráðnauðsynlegum kaupum á fatnaði fyrir barnið vegna lottómiðans. Öllu fórnað fyrir veikan draum um risavinning sem líklegur er til að skapa ógæfu. Markaðsherferðum og auglýsingum um fjárplógsstarfsemi er líka sérstaklega beint gegn þeim sem minnstar hafa varnirnar og minnst fjárráðin. Þeir sem hafa sett siðleg spurningamerki við svoleiðis hafa verið sakaðir um forræðishyggju. Hún þykir frekar vont orð, enda tókst næstum að útrýma ríkisforsjá þegar Íslendingar tóku nýfrjálshyggjunni opnum örmum fyrir hrun. En kallað var á ríkismömmu þegar annað var hrunið.

Nýfrjálshyggjan predikar að maðurinn sé fátt annað en eigingjörn og siðlítil vél. Hann eigi að hafa frelsi til að gera allt. Peningar séu upphaf og endir allra athafna og ef við getum ekki aflað þeirra séum við aumingjar.

Nýfrjálshyggjan vill að við höfum frelsi til að fara til helvítis. Hún vill lága skatta, telur eðlilegt að forréttindastéttir kaupi sér betri menntun og meira heilbrigði en hinir tekjuminni. Mennskan segir okkur hins vegar að við höfum skyldum að gegna, hvert gagnvart öðru. Að bjargir okkar séu ólíkar í upphafi lífsgöngunnar, að þess vegna verðum við að deila gæðunum, auka áherslu á velferð, upplýsingu og menntun, huga að öllum borgurum samfélagsins með því að auka jöfnuð og siðvit. Huga að aukningu andlegra gæða fremur en að einblína á lottóhyggju tilviljana- og frumskógarlögmálsins.
En þetta er harður slagur og tvísýnn.

Björn Þorláksson

Akureyringar spjara sig í heimi snjóbrettaíþróttarinnar

Akureyringar virðast spjara sig vel úti í hinum stóra heimi snjóbrettamennskunnar en einn þeirra sem leggur stund á greinina er hinn 27 ára gamli Gulli Guðmundsson sem er meðal annars á samning hjá ... Lesa »

Kristneshæli – fordyri hins hvíta dauða

Bygging Kristneshælis var mikið þrekvirki. Fjöldi manns kom að verkinu beint eða óbeint og í nóvember árið 1927 var það tekið í notkun. Almennt samkomulag var um nauðsyn þess að reisa heilsuhæli til ... Lesa »

Pílagrímsför fyrir ferðamenn – Af hverju ekki?

Af hverju komum við ekki Akureyri á kortið með hjálp Jóns Sveinssonar? Áttar yngri kynslóðin sig á því hvað Nonni var frægur í Evrópu og víðar á fyrri hluta 20. aldar? Kannski er eldri kynslóðin farin ... Lesa »

Af Landi og sonum, sveitasímum og fleira

Æskuslóðirnar mínar eru í Svarfaðardal. Ég er heimaalið barn og hleypti vart heimdraganum út fyrir Eyjafjörðinn að nokkru ráði fyrr en 19 ára gömul. Fyrstu fjórtán árin var ég nánast algerlega ... Lesa »

Norðurheimskautsbaugshlaup

Norðurheimskautsbaugshlaup TVG Zimsen var hlaupið í Grímsey í gær í einmuna veðurblíðu. Þetta er í annað skipti sem efnt er til þessa nyrsta almenningshlaups á Íslandi. Hlaupinn var einn hringur í ... Lesa »

Mozartveisla

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hóf starfsár sitt 2013-2014 – tuttugu ára starfsafmælisár sitt – með tónleikum í Hofi 30. október og bauð upp á þrjú verk eftir meistara Wolfgang Amadeus Mozart; einn ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

7/9/13

Sjö níu þrettán bank bank. Hvað er svona sérstakt við þessar tölur? Jú þær eru allar taldar heilagar, ekki það að tölur sem slíkar hafi ákveðna landhelgi eins og allt sem er heilagt heldur vísa þessar ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur

Heyrst hefur að meintur titringur innan háskólasamfélagsins á Akureyri sé ofmæltur eftir að Ólína Þorvarðardóttir, fyrrum þingmaður Samfylkingar, vann kosningu um stöðu sviðsforseta Hug- og ... Lesa »

Bláberja eftirréttur

Þessi eftirréttur er ótrúlega einfaldur. Í botninn er panna cotta með sýrðum rjóma, í miðjunni berjafrauð og ofan á dýrindis aðalbláber. Hvað er fullkomnara á haustdögum á Íslandi? Uppskriftin er ... Lesa »

Kyrrðarstund vegna sjálfsvíga

Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna verður haldin kyrrðarstund í Glerárkirkju þriðjudaginn 10. september kl. 20:00. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir leiðir stundina, aðstandandi segir frá reynslu ... Lesa »

Hann kenndi mér um allt saman

Laufey er sjö barna móðir sem ekki hefur átt auðvelt líf. Hún gagnrýnir ýmislegt í kerfinu m.a. barnavernd Norðurþings sem hún segir hafa lagt meiri áherslu á að sundra fjölskyldunni eftir að upp ... Lesa »

KA burstaði Völsung

KA og Völsungur áttust við í gærkvöldi á Húsavík, þar sem að KA menn fóru með öruggan sigur af hólmi, 6-0. Þrátt fyrir þennan sigur KA-manna, skipti leikurinn engu máli upp á stöðuna í deildinni en KA ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fá formenn stjórnarflokkanna þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben fyrir að gera hlutina í réttri röð, segir karl af Eyrinni sem sendi blaðinu háðskan póst. „Eins og flugfreyjurnar segja alltaf, ... Lesa »

Segðu mér satt og Blakkát um helgina

Um helgina verða fyrstu sýningar leikársins hjá Leikfélagi Akureyrar en í kvöld verður fyrsta sýning af fimm á verki Bjarkar Jakobsdóttur, Blakkát, sem sýnt var í Gaflaraleikhúsinu sl. vetur við góða ... Lesa »

Martröð ef fólk hlær ekki!

Einn umtalaðasti listamaður landsins þessa dagana, Hugleikur Dagsson, flytur uppistand í Hofi í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 21. Í viðtali við Akureyri vikublað segist Hugleikur hafa gert uppistand ... Lesa »

Glæsileg nýnemahátíð hjá VMA

„Við sem erum í nýrri stjórn Þórdunu fórum strax að hugsa um það síðastliðið vor að hafa nýnemahátíðina okkar í ár á þessum nótum og að því höfum við síðan unnið að undanförnu. Fyrir tveimur árum var ... Lesa »

Akureyringur sigraði í British Public Radio Award

Sigurður Þorri Gunnarsson er 24 ára Akureyringur sem útskrifaðist úr fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri vorið 2012 og stundar nú meistaranám í fjölmiðlafræði við háskólann í Sunderland á ... Lesa »

halogotop (1)

Kristín Ágústsdóttir ráðin í markaðs- og kynningarmál HA

Ákveðið hefur verið að ráða Kristínu Ágústsdóttur í starf forstöðumanns markaðs- og kynningarmála hjá Háskólanum á Akureyri. Kristín er með MSc gráðu í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum og ... Lesa »

Ólæsisvandi minni á Akureyri en í Reykjavík?

Vísbending er um að lestrarkunnátta nemenda í tveimur fyrstu bekkjum grunnskólans á Akureyri sé ekki sami vandi og nú er ræddur í Reykjavík. Aðeins 63% sjö ára barna í Reykjavík geta lesið sér til ... Lesa »

Heiftin um Reykjavíkurflugvöll

Í umræðunni um framtíð Reykjavíkurflugvallar takast á tvö meginsjónarmið; þeirra sem vilja hann áfram í óbreyttri mynd og hinna sem vilja nota svæðið til að þétta byggð. Báðir hafa nokkuð til síns ... Lesa »

Mikilvægi flugvallarins staðfest

Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga- og handlækningasviðs Sjúkrahússins á Akureyri segir að Ríkisendurskoðun hafi staðfest mikilvægi flugvallar í Reykjavík. Þótt fréttastofa Stöðvar 2 ... Lesa »

Völsungur og KA eigast við í grannaslag

Einn leikur er á dagskrá 1. deildar karla í knattspyrnu í dag og er það viðureign nágrannaliðanna Völsungs og KA. Leikið er á Húsavík og hefjast leikar klukkan 18.00. Lítið er undir í þessum leik, ... Lesa »

Þór keppir ekki við Stjörnuna í dag

Ofsögum var sagt af því í frétt hér á vefnum fyrr í dag að Þór keppti við Stjörnuna í Garðabæ í dag því leikurinn fer ekki fram fyrr en í næstu viku. Nú um helgina fer fram landsleikur Íslendinga og ... Lesa »

Karnival á skólalóð VMA

Þessa viku hefur Þórduna – nemendafélag VMA staðið fyrir ýmsum uppákomum í því skyni að bjóða nýnema velkomna í skólann. Hámarki nær nýnemahátíðin í dag, fimmtudag, þegar efnt verður til karnivals á ... Lesa »

Boðar ekki gott ef skerða á enn meira

Rektor Háskólans á Akureyri segir að brugðist verði við óánægju meðal starfsmanna Háskólans á Akureyri. Ný könnun sem BHM efndi til sýnir að starfsánægja akureyrskra háskólakennara mælist undir rauðu ... Lesa »

Skoða meira