Mótsvar við grein Tryggva Sveinbjörnssonar
Tryggvi Sveinbjörnsson vandar mér ekki kveðjurnar í síðustu útgáfu Akureyri Vikublaðs og segir farir sínar ekki sléttar. Gamlar fréttir eru dregnar upp og segir hann að ég hafi með misbeitingu brotið á rétti hans, stundi einokunarstarfsemi og hamli því að samkeppni þrífist. Allt þetta er rangt.
Fyrir það fyrsta er Tryggva vel kunnugt um að reglugerð er í gildi um skilti í umdæmi Akureyrar. Það hefur verið ýjað að því að ég hafi með setu í Skipulagsnefnd beitt áhrifum mínum mér til góðs sem er rangt. Það er auk þess ekki nýjar fréttir að ég hafi á laugardegi haft samband við skipulagsstjóra og kvartað yfir því að umræddur Tryggvi hafi með freksemi sinni sett auglýsingaskilti fyrir utan þjónustuhúsið á Oddeyrartanga sem ég hef haft á leigu um árabil, eina 150 metra frá eigin húsnæði. Það er ekki löglegt og ber að stöðva. Hvort heldur sem er á laugardegi eða öðrum dögum og réttur minn er ekki minni en annarra rekstraraðila hér á Akureyri þótt ég sé kjörinn fulltrúi. Ég skrifaði um helgina að þú hringir ekki í lögregluna á mánudegi ef bílnum þínum er stolið á laugardegi.
Samskipti FAB travel við Hafnarsamlagið og aðra aðila á svæðinu hafa verið meira en afleit. Lögregla hefur verið kölluð til af hálfu Hafnarstjóra til að skakka leikinn þegar verst hefur látið. Til að taka af allan vafa þá var ég staddur úti á landi þegar það gerðist og frétti ekki af þessu atviki fyrr en síðar. Þetta atriði gleymdi Tryggvi að minnast á. Reglur Hafnarsamlagsins hafa verið ítrekað brotnar á svæðinu af fyrirtæki hans. Það er kannski eitthvað í hans eigin fari sem er ekki í lagi. Endalausar samsæriskenningar sem eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum og mönnum er brigslað um óheilindi. Ég hef haft húsnæðið á Oddeyrartanga á leigu frá því að það var byggt og ber af því mikinn kostnað. Þess ber að geta að það var áður en ég var kjörinn bæjarfulltrúi. Hann skrifar um einokunarstarfsemi og ég vildi bara benda honum á stærð húsnæðisins. Ekki sé möguleiki að vera þar inni með marga þjónustuaðila. Hann víkur að því í grein sinni að hvað yrði gert ef þetta væri flugstöð, myndi þá þessi meinta einokun vera liðin? Eitt get ég sagt þér, Tryggvi Sveinbjörnsson, að Flugstöð Leifs Eiríkssonar er nokkur þúsund fermetrar að stærð en samt sem áður komast ekki allir inn sem vilja. Húsnæðið á Oddeyrarbryggju er um 150 fermetrar.
Bestu þjónustuna veitir Höldur og hún hefur lítið athvarf í húsinu ásamt Saga Travel sem stendur sig með prýði. Ég átti í samstarfi við Tryggva fyrir nokkrum árum og voru viðskiptahættir FAB travel með þeim hætti að ekki mátti við una. Viðskiptavinir hans gátu ekki greitt með öðru en peningum sem er afar sérstakt. Kannski hefur þetta breyst. Gangi þér samt vel, Tryggvi.
Sigurður Guðmundsson






























