Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, var endurkjörinn formaður Starfsgreinasambands Íslands á þingi sem fram fór í Menningarhúsinu HOFI á Akureyri. Í ályktun þingsins um kjaramál segir að vegna óvissu í efnahagsmálum á næstu misserum sé ekki ráðlegt að semja til langs tíma. Í komandi kjarasamningum verði ríkisstjórnin krafin um efndir á fyrirheitum sem gefin voru í kosningabaráttunni um bættan hag heimilanna. Þá fordæmir Starfsgreinasambandið skattabreytingar sem færa þeim tekjuhæstu skattalækkun á meðan skattbyrði láglaunahópa helst óbreytt. Svigrúmi sem sé til skattalækkana verði ráðstafað til þeirra sem minnst hafi milli handanna. Kaupmætti verði náð með sérstakri áherslu á hækkun lægstu launa og hækkun persónuafsláttar.
Þing Starfsgreinasambandsins vill brjóta á bak aftur þá láglaunastefnu sem hefur ríkt hér á landi á undanförnum árum og áratugum og að barist verði af alefli fyrir því að lagfæra kjör verkafólks svo um munar í komandi kjarasamningum. Leiðrétting á launum verkafólks muni skila sér í aukinni einkaneyslu, auknum hagvexti og auknum skatttekjum til ríkis og sveitarfélaga.
-BÞ




















