Evrópskir kvikmyndadagar verða nú haldnir í annað sinn á Akureyri og hefjast í dag, 24. október. Það er kvikmyndaklúbburinn KvikYndi sem stendur fyrir hátíðinni í samstarfi við Evrópustofu, Sambíó Akureyri og Bíó Paradís. Þrjár myndanna eru með enskum texta en opnunarmyndin er með enskum texta. Ókeypis aðgangur á sýningarnar á meðan húsrúm leyfir en hver mynd er aðeins sýnd einu sinni.
Sýndar verða fjórar myndir sem segja má að sé brot af því besta frá Evrópskri kvikmyndahátíð sem haldin var í Bíó Paradís fyrir skömmu. Evrópsk Kvikmyndahátíð 2013 gekk vonum framar í Bíó Paradís í ár, en yfir 2000 bíógestir sóttu hátíðina heim. Hátíðin er haldin á vegum Evrópustofu – Upplýsingamiðstöðvar ESB á Íslandi í samstarfi við Bíó Paradís.
„Evrópskir kvikmyndagerðarmenn eru fremstir meðal jafningja í hinum fjölbreytilega heimi kvikmyndanna og við erum afar stolt af því að geta boðið Akureyringum að sjá nokkrar af nýjustu og ferskustu evrópsku myndunum,“ segir Arnar Már Arngrímsson, formaður KvikYndis og bætir því við að myndirnar séu sérstaklega valdar með fjölbreytileikann í huga en einnig séu allar myndirnar margverðlaunaðar á ýmsum kvikmyndahátíðum.
Hátíðin hefst með viðhöfn með sýningu hinnar margverðlaunuðu belgísk/hollensku myndar The Broken Circle Breakdown sem farið hefur sigurför um Evrópu, hún vann áhorfendaverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrr á árinu, vann til tveggja verðlauna á kvikmyndahátíðinni Tribeca og er jafnframt tilnefnd til áhorfendaverðlauna Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2013. Allir eru velkomnir á opnunarsýninguna sem fer fram fimmtudaginn 24. október og hefst með fordrykk kl. 19:15. Hinar myndirnar þrjár verða svo sýndar yfir helgina kl. 18, föstudag, laugardag og sunnudag.
Dagskrá Evrópskra kvikmyndadaga á Akureyri má finna á vefnum kvikyndi.is



















