Lof fá kúabændur í Eyjafirði fyrir að dreifa mykju á túnin sín svo fjörðurinn „ilmar alveg dásamlega þessa fallegu lognkyrru daga,“ segir kona á Akureyri. „Ljúfsár tregi læðist inní minn aldraða huga og leiðir mig til áranna heima í sveitinni,“ bætir hún við með broskalli og bregst þar við lasti vegna lyktarinnar í síðasta blaði þar sem skítalykt var hörmuð, vetur, sumar, vor og haust…
Last fær nýja fiskbúðin í Bónushúsinu við Kjarnagötu fyrir „mjög háa verðlagningu“. „Ég kom þar inn í vikunni en sneri við þegar ég sá hvað verðið var hátt á fiskinum,“ segir karl á Akureyri.
Last fær Akureyrarbær fyrir lélegar merkingar á gangbrautum. „Þetta var sérlega bagalegt í sumar þegar bærinn var fullur af útlendingum og malbikað var yfir götur í miðbænum án þess að merktar væru gangbrautarrendur. Þær eru enn ómerktar og víða eru engar miðlínur á götunum,“ segir karl í bréfi til blaðsins.
Last fá þeir sem skipulögðu bílastæðin við Bónusbúðina í Naustahverfi. „Einnig fær Gámafélagið las t fyrir að tæma gámana við Bónusbúðina í Naustahverfi of sjaldan. Þar eru plast- og fernugámarnir yfirfullir,“ segir í bréfi frá íbúa.
Last fá bílaeigendur „sem ekki vita að þokuljós á ekki að nota nema í þoku eða byl.“ Svo ritar kona í bréfi til blaðsins. „Það er hvimleitt og oft á tíðum vont að mæta þessum bílum. Annað hvort kunna þessir menn ekki á ljósastillingarnar í bílunum eða þeir halda að þetta sé eitthvað óskaplega fínt, jafnvel stöðutákn að hafa bílinn einsog jólaskreytingu. Tillitssemi við aðra ökumenn virðist fjarri þeim,“ skrifar konan…
Last fær Strætó fyrir „afburða lélega heimasíðu,“ segir maður á miðjum aldri, nýfluttur til Akureyrar.
Lof fá kúabændur „fyrir að framleiða holla og góða vöru vetur, sumar, vor og haust.” Svo skrifar „tryggur lesandi blaðsins“ í bréfi.




















