Jóhannes Gunnar Bjarnason íþróttakennari og fyrrum bæjarfulltrúi á Akureyri skorar á þá flokka og framboð sem ætla að stilla upp lista í sveitarstjórnarkosningunum í vor að gera Akureyri að frumkvöðlabæ í heilsurækt barna og unglinga. Það verði gert með breytingum á aðaláherslum námsgreina. Mannvirkin séu til staðar en hugarfarsbreytinga sé þörf.
Tilefni þessa er að Jóhannes segist undanfarin ár hafa fylgst með rannsóknum á hreyfingarleysi barna og unglinga. „Niðurstöðurnar eru sláandi og fer ástandið versnandi. Í öllum þessum rannsóknum er bent á hvaða afleiðingar það hefur ef ekki er gripið inn í þessa þróun.“
Íþróttakennarinn segir að tveir af okkar virtustu læknum hafi ritað grein í Læknablaðið sem þeir kalli heimsfaraldur 21.aldar. Þróunin muni að óbreyttu sliga heilbrigðiskerfi allra vestrænna ríkja. „Afleiðingar hreyfingarleysisins er aukin tíðni ósmitbærra sjúkdóma s.s. sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma, offita og krabbamein. Hin hraða þróun í skjámenningu okkar þ.e. aukin notkun á tölvum og öðrum skjátækjum er orsakavaldurinn. Það er aðeins ein leið fær auk fræðslu til þess að stöðva þessa þróun. Koma þarf á markvissum hreyfistundum undir handleiðslu íþróttakennara í leik, grunn og framhaldsskólum daglega. Það er til lítils að berjast við bókina ef heilsan bilar um miðjan aldur,“ segir Jóhannes.
Hann segir íþróttir og hreyfingu þurfa að vera forgangsatriði hjá skólayfirvöldum en ekki afgangsstærð. Lýðgrundaðar aðgerðir sem komi frá æðstu stjórnvöldum séu eina færa leiðin.
-BÞ




















