Sinfóníuhljómsveit Færeyja hélt sína fyrstu tónleika 19. júní 1983 og fagnar því um þessar mundir 30 ára afmæli sínu. Í tilefni þess heimsækir hljómsveitin Norðurland og í kvöld verða tónleikar í Hofi þar sem hljómsveitin meðal annars frumflytur verk eftir Sunnleif Rasmussen sem er meðal áhrifamesta tónlistarfólks Færeyja en verkið er afmælisgjöf hans til Sinfóníuhljómsveitar Færeyja.
Einnig flytur rússneski píanóleikarinn Pavel Rajkerus píanókonsert en hann hefur verið sigursæll í ýmsum alþjóðlegum keppnum og vann sem dæmi alþjóðlega keppni í St. Pétursborg sem efnilegasti píanóleikarinn árið 2000. Pavel starfar sem píanókennari í St. Pétursborg og í Kóreu en nemendur hans hafa þegar margir unnið til verðlauna innanlands og utan og þykja líklegri til frekari afreka.
Aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Færeyja er Bernharður Wilkinson en hann starfaði lengi sem flautuleikari og aðstoðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Bernharður fæddist á Englandi og á farsælan tónlistarferil að baki sem hófst þegar Bernharður var ungur drengur og söng í drengjakór á Englandi og kom m.a. fram í Westminister Abbey. Hann lærði síðar á flautu og starfaði lengi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands en hefur stjórnað ýmsum hljómsveitum og kórum víða um Evrópu. Hann hefur starfað sem aðalhljómsveitastjóri Sinfóníuhljómsveitar Færeyja síðan árið 2005.
-SBS




















