Lof og last vikunnar

Lof og last vikunnar

Lof og lastLast fá þeir ferðamenn sem bæinn sækja en kunna ekki að leggja bílum samkvæmt umferðarreglum. Skrifar kona, búsett í Helgamagrastræti á Akureyri. „Það er mikið gaman að fá fullt af fólki í heimsókn í bæinn á veturna til að taka þátt í vetraríþróttum. EN of margir sem hingað koma á sínum „útblásnu hormónajeppum“ virðast ekki gera sér grein fyrir þeim reglum er gilda um „parkeringu” bíla. Má þar sérstaklega benda á „lagningu” bíla sunnarlega í Helgamagrastræti og efst í Hamarstíg neðan Þórunnarstrætis. Lögreglu hefur verið bent á þetta vandamál, en er undirmönnuð til að sinna slíkum smá verkefnum,“ skrifar konan…

Last fær Akureyrarbær fyrir að gæta þess ekki að setja sand eða aðra hálkuvörn við hverfisgámana hér í bænum, að sögn íbúa íbænum. „Bærinn sem segist vera með öll lífsins gæði stendur ekki undir nafni þegar kemur að þessum málum, enda rann ég í hálku á mánudaginn við eina hverfisstöðina og braut á mér hendina. Alger glerungur var á svæðinu og greinilegt að ekkert hafði verið sandað þar. Spurning hvort ég geti farið í mál við bæinn.“…

Lof fá allir sem veita góða þjónustu í miðbæ Akureyrar og þá ekki síst Hafdís i GS. Þetta segir kona sem hafði samband við blaðið og segist hún vona að góð þjónusta hjá fólki í miðbænum verði vonandi eitt af því sem bjargi miðbænum frá því að „sofna“…

Lof fær Norðurorka fyrir að styðja myndarlega við lista- og menningarlíf á Akureyri.

Last fær Norðurorka fyrir að koma í veg fyrir hundasleðakeppni sem átti að fara fram á gönguskíðabraut í Hlíðarfjalli, segir hagsmunaaðili. Hann segir rökin þau að hluti gönguskíðabrautar nái inn á vatnsverndunarsvæði Akureyringa, svokallað grannsvæði. Gönguskíðafólk og „önnur dýr“ hafi gengið þarna sjálfala á þessu svæði í mörg ár og girðing sem verndar vatnsból Akureyringa legið niðri meira og minna síðastliðin ár. „Sá tími sem áætlaður var fyrir ofangreinda keppni eru fjórar klukkustundir, ekki oftar en einu sinni á ári,“ segir hagsmunaaðilinn…

Vinalegt gamalt fólk á Öldrunarheimilum Akureyrar. Mynd af vef Akureyrarbæjar

Hræðast karlar gamalt fólk?

Á Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA) starfa einungis níu karlar við umönnun í tæplega sex stöðugildum og eru konur því um 97% starfsmannahópsins. Í von um að hægt verði að leiðrétta ... Lesa »

Frá kynningarfundi Evrópustofu á Hótel KEA í febrúar

Reynsla Svía af landbúnaðarstefnu ESB

Karl Erik Olsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra Svíþjóðar fjallar um reynslu Svía af landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins og þátttöku í Evrópuþinginu á opnum fundi á Hótel KEA, ... Lesa »

Arna Valsdóttir. Mynd af vef VMA

Ekki athyglisbrestur heldur víðhygli

Fyrir um áratug setti Arna Valsdóttir, kennari og brautarstjóri listnámsbrautar VMA, fram hugtakið „víðhygli“ sem hún taldi og telur enn að eigi mun betur við um fjölmarga þá ... Lesa »

Mynd: Daníel Starrason

Færi getur verið erfitt innanbæjar

Starfsmenn Akureyrarbæjar vinna nú við að hreinsa götur í bænum. Víða hefur skafið í skafla og getur því verið erfitt fyrir minni bíla að komast leiðar sinnar en annarsstaðar er vel ... Lesa »

5. þreps liðin á Bikarmóti í áhaldafimleikum. Mynd af vef FIMAK

Gott gengi FIMAK um helgina

Um helgina fór fram Íslandsmót unglinga í hópfimleikum. Mótið var haldið hjá Stjörnunni í Garðabæ og sendi Fimleikafélag Akureyrar fjögur lið til keppni. Tvö liðanna kepptu í 2. ... Lesa »

Þessa mynd tók Margrét Elfa Jónsdóttir af hjólum á Akureyri í dag. Aðeins hörðustu naglar ferðast um á slíkum fákum í svona veðri

Aðstoðuðu hjólreiðamann í Langadal í morgun

Lögreglan á Blönduósi kom þýskum hjólreiðamann til aðstoðar í Langadal í morgun en skólabílstjóri hafði komið auga á manninn á ferð sinni um dalinn og tilkynnt til lögreglu. Sagt ... Lesa »

Sauðkrækingar segjast ekki vera kræklingar. Mynd: Helga Kvam, allskonar.is

Króksarar ekki sáttir við að vera kallaðir kræklingar

Sauðkrækingar eru ekki ánægðir með að í dreifibréfi sem í morgun kom inn um bréfalúgur frá Símanum er ávarpið: Kæri Sauðkræklingur. Hafa margir kvartað yfir þessu í dag og vilja ... Lesa »

eyrarrosin

Eyrarrósin verður afhent í Hofi

Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar, verður veitt í níunda sinn þriðjudaginn 12. mars næstkomandi. Í ár verður ... Lesa »

Í éljagangi og skafrenningi síðdegis 4. mars 2013. Mynd: Þórgnýr Dýrfjörð

Munið að hreinsa snjó af bílljósunum

„Nú er stórhríð í umdæminu og skyggni lítið. Ekkert ferðaveður er á vegum og færð víða farin að spillast í þéttbýli, sérstaklega í úthverfum. Til þeirra sem þó eru og ... Lesa »

Sundlaugin á Akureyri

Dýrt í sund á Akureyri

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. janúar 2012. til 1. janúar 2013. Tólf sveitarfélög hafa hækkað ... Lesa »

snjorvegur

Færð tekin að spillast innanbæjar á Akureyri

Færð er nú tekin að spillast innanbæjar á Akureyri og ekki lítur út fyrir að neitt lát verði á úrkomuni í dag. Starfsmenn Akureyrarbæjar vinna nú við að moka helstu leiðir. Á ... Lesa »

Við afhendingu verðlaunanna. Mynd: Hörður Kristjánsson bbl.is

Handverkskonur milli heiða verðlaunaðar

Landbúnaðarverðlaunin 2013 voru veitt nú við setningu búnaðarþings í gær, sunnudaginn 4. mars. Verðlaunin hlutu bændur í Laxárdal II og handverkshópurinn Handverkskonur milli heiða en ... Lesa »

Harvey Siegel

Hvað er gagnrýnin hugsun? Af hverju er hún mikilvæg?

Hvað er gagnrýnin hugsun? Af hverju er hún mikilvæg? Þetta eru spurningar sem Harvey Siegel prófessor við Háskólann í Miami veltir upp í fyrirlestri sem haldinn verður við Háskólann á ... Lesa »

Mynd sem Linda Ólafsdóttir tók fyrr í veturMynd: Linda Ólafsdóttir

Veður og ófærð

Þá er vetrarveðrið skollið á aftur eftir mikinn hlýindakafla. Veðurstofan varar við norðan og norðaustan hvassviðri eða stormi (15-25 m/s) víða um land a.m.k. fram á kvöld. Á ... Lesa »

Kristín Einarsdóttir

Má bjóða þér far?

„Má bjóða þér far?” Spurði mig kona. Ég á ekki bíl og þarf því að reiða mig á tvo jafnfljóta, strætó eða “Svörtu þrumuna” sem er hjólið mitt . Ég bý á Akureyri og ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Að kúra með tígrisdýri

Um daginn sat ég með kaffibolla og renndi hugsunarlaust yfir Fésbókina. Augun staðnæmdust við mynd af gamalli konu og í flæðinu sem skapast milli svefns og nægrar koffeininntöku renndi ég ... Lesa »

Candle

12 ára drengur lést í bílslysinu í Skagafirði

Drengurinn sem lést í bílveltu við bæinn Egilsá í Norðurárdal í Skagafirði í fyrradag hét Blængur Mikael Bogason og var nýorðinn tólf ára. Hann var farþegi í jeppa sem lenti út af ... Lesa »

Steingrímur J. Sigfússon

Tímamót og tækifæri

Á dögunum urðu nokkur tímamót í mínu pólitíska lífi þegar ég eftir 14 ára samfellda formennsku í Vinstrihreyfingunni grænu framboði lét af því embætti og Katrín Jakobsdóttir tók ... Lesa »

Vífill Karlsson lektor flutti erindi sitt á Akureyri.

Stærðarhagkvæmni er ekki sjálfgefin

Ef tvö stór sveitarfélög sameinast getur skapast togstreita um þjónustu og jafnvel þensla sem verður til þess að éta hagræðingu á öðrum sviðum upp. Þetta kom fram í umræðum um ... Lesa »

Hermann Óskarsson

Fann manntalið á öskuhaugunum

Út er komin bókin Félagsgerð Akureyrar 1785-2000: Upphaf og þróun þéttbýlis, stéttaskiptingar, stjórnmála og atvinnulíf eftir Hermann Óskarsson dósent við Háskólann á Akureyri. ... Lesa »

Möðruvallaprestakalli aftur skipt upp

Á kirkjuþingi, sem slitið var í dag, var samþykkt að Möðruvallaprestakalli verði aftur skipt upp í tvö prestaköll. Það varð til við sameiningu Möðruvalla- og Hríseyjarprestakalls í ... Lesa »

bjorgun

Björgunarsveitir á leið í Svarfaðadal

Björgunarsveitir á Norðurlandi eru nú á leið í Svarfaðardal að sækja göngukonu sem slasaðist í fjalllendi. Konan, sem var á ferð með gönguhópi, er líklegast fótbrotin. Slysið ... Lesa »

Heimspólitíkin krufin á Akureyri

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í gær verkið Kaktusinn eftir Juli Zeh í leikstjórn Ragnheiðar Skúladóttur, leikhússtjóra LA. Margir hafa beðið í ofvæni eftir sýningunni enda þótti ... Lesa »

Samhengi hlutanna

Um sýningu Finns Arnars og Þórarinns Blöndal Sýningin Samhengi hlutanna stendur nú yfir í Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri, en að henni standa myndlistamennirnir Finnur Arnar Arnarson ... Lesa »

Björn Þorláksson

Skólakerfi á krossgötum

Félag grunnskólakennara hyggst nú í samráði við Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Skólastjórafélag Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga endurskoða þá skólastefnu sem ... Lesa »

Skoða meira