Samhengi hlutanna

Samhengi hlutanna

Um sýningu Finns Arnars og Þórarinns Blöndal

Sýningin Samhengi hlutanna stendur nú yfir í Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri, en að henni standa myndlistamennirnir Finnur Arnar Arnarson og Þórarinn Blöndal. Þeir eru Akureyringum góðkunnir og hafa sýnt þar með reglulegu millibili. Sýningin opnaði 15. janúar og stendur til og með 3. mars. Jóhann S. Bogason, heimspekingur og þýðandi, hefur skrifað fróðlegan pistil um hugðarefni félaganna sem lesa má í heild á heimasíðu Sjónlistamiðstöðvarinnar. Myndlistarmennirnir hafa báðir unnið lengi að myndlist auk þess sem þeir hafa margoft starfað við leikmyndagerð. Þeir hafa einnig séð um hönnun og sett upp safneignir fyrir Safnahúsið á Húsavík og Smámunasafnið í Eyjafirði.

Afstæði tímans

Sköpunin er sameiginlegur þráður hjá báðum í Samhengi hlutanna. Finnur Arnar vinnur með spurningar er varða líf og dauða og kemur auk þess inn á hugmyndir um hve tíminn er afstæður út frá viðmiðum hverju sinni. Vídeóverk hans og ljósmyndir mynda áhugaverða heild. Videomyndir af höndum virðast sem ljósmyndir en við nánari eftirgrennslan hreyfast þær örlítið. Að sögn listamannsins tákna þær upphaf og enda lífsins, þær bæði gefa líf og taka líf. Í fornri speki segir að við höfum líflínu í lófunum sem á að geta sagt eitthvað til um lengd lífs okkar. Hugmyndin um tímann og að öllu er afmörkuð stund, eins og segir í Biblíunni, kemur fram í videoverki Finns þar sem annars vegar eru sýndir berir fætur gangandi manns sem dregur með sér vopn til veiða og hins vegar fjöll sem hálfhulin eru í þoku og ógreinilegir fuglar fljúga í björgum. Hugsanlega á þetta að minna okkur á að skerpa athyglina og gefa okkur tíma til að njóta listarinnar.

Tími hverrar mannveru er stuttur miðað við tíma fjallanna en hann er líka stuttur í samanburði við sólkerfið. Biblían, frægasta bók okkar siðmenningar fjallar um sköpun heimsins; hér sjást 7 ljósmyndir af mismunandi þurrkuðum plöntum sem settar hafa verið inn í hana til geymslu. Með því að þurrka blóm getum við reynt að lengja tíma þeirra og notið þeirra lengur. Taka má þessa hugsun lengra og ímynda sér að manneskjan taki upp plönturnar með höndunum úr fjallshlíðunum og þær rotna svo og verða að mold aftur og úr henni koma ný blóm sem mannshöndin getur kippt upp o.s. frv. Endalaus hringrás.

Allt helst í hendur

Á sýningu Finns Arnars eru einnig tvær nokkuð stórar ljósmyndir af listamanninum teknum með sólarhrings millibili, þær eru staðsettar hvor á móti annarri og er líkt og þær horfist í augu. Fyrri myndin er tekin áður en listamaðurinn undirgekkst ófrjósemisaðgerð og sú seinni sólarhring síðar sem aftur veltir upp hugmyndum um sköpun og eyðileggingu. Áhorfandinn hefur á sýningunni möguleika á að skoða hluta af hringrás lífs og dauða, frjósemi og sköpunar og getur velt því fyrir sér hvernig eitt leiðir af öðru og í hvaða samhengi hlutirnir birtast okkur, eins og titill sýningarinnar gefur til kynna.

Aðspurður um hvaða listamenn honum finnst að hann tengist mest nefnir Finnur frönsku myndlistarkonuna Luise Bourgoise vegna þess að hún notar lífshlaup sitt og tilfinningar sem grunn að eigin verkum. Í þessu liggur sérstaða Finns Arnars í íslenskri myndlist, alla vega meðal karlkyns myndlistarmanna. Samvinna hans og eiginkonu hans Áslaugar Thorlacius og barna þeirra er alveg einstök á Íslandi en þau stóðu fyrir eftirminnilegri sýningu í Listasafni ASÍ, 2010.

Skúlptúrar margra sjónarhorna

Þórarinn Blöndal sýnir þrjá stóra skúlptúra, en einn þeirra var hluti af samsýningu Sjónlistamiðstöðvarinnar Allt+ sumarið 2012, sem sett var upp í tengslum við 150 ára afmæli Akureyrarbæjar. Verkið heitir Förumaður og átti að vera staðsett fyrir utan tískuvöruverslun í miðbæ Akureyrar en endaði framan við Ketilhúsið seinna um sumarið. Verkið vann Þórarinn um það leyti sem hann flutti búferlum frá Akureyri til Reykjavíkur. Í innkaupakerrunni (sem er hluti af verkinu) er mismunandi munum og dóti komið haganlega fyrir en við nánari skoðun er ekki allt sem sýnist því í dótinu leynast skúmaskot og göt sem mynda mismunandi rými, leiksvið eða aðra heima.

Þórarinn notar spegla til að fá fram mismunandi sjónhverfingar, t.d. virðist eitt rýmið vera margir metrar á lengd, jafnvel óendanlegt, en er í raun bara um hálfur metri. Hér reynir á forvitni og hugkvæmni áhorfandans að finna rýmin, sum eru að vísu svo hátt uppi að erfitt er að sjá þau fyrir lávaxna nema þeir fari upp á stól eða stiga. Önnur eru staðsett svo neðarlega að menn þurfa að beygja sig og jafnvel að krjúpa. Allir ættu að geta séð eitthvað miðað við sínar forsendur, stærð, þroska og áhuga. Listaverkin gera vissa kröfu til áhorfandans um þátttöku með því að leita og uppgötva. Annað verk á sýningunni er af svipuðum toga. Þar er þjappað saman hlutum, verkfærum og mismunandi efnum – sem allt er listamönnum kunnugt – í einn skúlptúr.

Hugrænar sápukúlur

Þriðji skúlptúrinn er merkileg kúla þar sem þórarinn hefur endurskapað vinnustofu listamanns. Inni í kúlunni er svo endurgerð af þessari endurgerð og hægt væri að hugsa sér að þarna væri að finna enn aðra endurgerð og svo koll af kolli eins og rússneskar matryoshka-dúkkur hver inni í annarri. Þórarinn minnir okkur á að sköpunin endar hvergi, hún er endalaus í báðar áttir – kúlan getur minnkað niður í frumendir eða stækkað í það óendanlega. Kúla Þórarins er mynduð úr stálgrind sem gegnsætt plast er stengt yfir og fest í loftið þannig að hún svífur yfir gólfinu.

Þórarinn og verk hans eiga sér vart hliðstæðu í íslenskri myndlist. Vandvirkni, efnistilfinning og næmi fyrir smáatriðum, samhengi og jafnvægi hlutanna, færir áhorfandann inn í fjölbreyttan heim skynjunar, þar sem eðlisfræði, leikhús, sýningarrými og staða listamannsins nær að mynda kröftuga fagurfræðilega heild. Að mati Hannesar Sigurðssonar sjónlistastjóra er helst að sjá einhverskonar hliðstæður í verkum Ilya Kabakov, Joseph Cornell og Louise Nevelson. Verk þessara listamanna falla vel saman þó ólík séu á margan hátt að forminu til og mynda sterka heild sem vekur forvitni og umræður og ýtir undir fagurfræðilega upplifun.

Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
Höfundur er fræðslufulltrúi Sjónlistamiðstöðvarinnar

Kristín Einarsdóttir

Má bjóða þér far?

„Má bjóða þér far?” Spurði mig kona. Ég á ekki bíl og þarf því að reiða mig á tvo jafnfljóta, strætó eða “Svörtu þrumuna” sem er hjólið mitt . Ég bý á Akureyri og ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Að kúra með tígrisdýri

Um daginn sat ég með kaffibolla og renndi hugsunarlaust yfir Fésbókina. Augun staðnæmdust við mynd af gamalli konu og í flæðinu sem skapast milli svefns og nægrar koffeininntöku renndi ég ... Lesa »

Candle

12 ára drengur lést í bílslysinu í Skagafirði

Drengurinn sem lést í bílveltu við bæinn Egilsá í Norðurárdal í Skagafirði í fyrradag hét Blængur Mikael Bogason og var nýorðinn tólf ára. Hann var farþegi í jeppa sem lenti út af ... Lesa »

Steingrímur J. Sigfússon

Tímamót og tækifæri

Á dögunum urðu nokkur tímamót í mínu pólitíska lífi þegar ég eftir 14 ára samfellda formennsku í Vinstrihreyfingunni grænu framboði lét af því embætti og Katrín Jakobsdóttir tók ... Lesa »

Vífill Karlsson lektor flutti erindi sitt á Akureyri.

Stærðarhagkvæmni er ekki sjálfgefin

Ef tvö stór sveitarfélög sameinast getur skapast togstreita um þjónustu og jafnvel þensla sem verður til þess að éta hagræðingu á öðrum sviðum upp. Þetta kom fram í umræðum um ... Lesa »

Hermann Óskarsson

Fann manntalið á öskuhaugunum

Út er komin bókin Félagsgerð Akureyrar 1785-2000: Upphaf og þróun þéttbýlis, stéttaskiptingar, stjórnmála og atvinnulíf eftir Hermann Óskarsson dósent við Háskólann á Akureyri. ... Lesa »

Möðruvallaprestakalli aftur skipt upp

Á kirkjuþingi, sem slitið var í dag, var samþykkt að Möðruvallaprestakalli verði aftur skipt upp í tvö prestaköll. Það varð til við sameiningu Möðruvalla- og Hríseyjarprestakalls í ... Lesa »

bjorgun

Björgunarsveitir á leið í Svarfaðadal

Björgunarsveitir á Norðurlandi eru nú á leið í Svarfaðardal að sækja göngukonu sem slasaðist í fjalllendi. Konan, sem var á ferð með gönguhópi, er líklegast fótbrotin. Slysið ... Lesa »

Heimspólitíkin krufin á Akureyri

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í gær verkið Kaktusinn eftir Juli Zeh í leikstjórn Ragnheiðar Skúladóttur, leikhússtjóra LA. Margir hafa beðið í ofvæni eftir sýningunni enda þótti ... Lesa »

Samhengi hlutanna

Um sýningu Finns Arnars og Þórarinns Blöndal Sýningin Samhengi hlutanna stendur nú yfir í Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri, en að henni standa myndlistamennirnir Finnur Arnar Arnarson ... Lesa »

Björn Þorláksson

Skólakerfi á krossgötum

Félag grunnskólakennara hyggst nú í samráði við Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Skólastjórafélag Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga endurskoða þá skólastefnu sem ... Lesa »

Nú reynir á okkur

Nú veit ég ekki hvernig ég á að snúa mér. Fyrir rétt tæpu ári síðan var lagt fram deiliskipulag sem fól það í sér að afkastamiklar breytingar yrðu gerðar við Drottningarbraut ... Lesa »

Norðlenska greiðir 525 bændum arð

  Rekstur Norðlenska gekk vel í fyrra og 2012 er næst besta rekstrarár félagsins frá upphafi. Ársvelta var tæpir 4,7 milljarðar króna og jókst um rúm 3,1% á milli ára. ... Lesa »

Ellefu ára drengur safnar skeggi

Hann kom svo glaður til mín í morgun, nýorðinn ellefu ára, burstaklipptur með glampa í augum sem skarta snemmbúnum broshrukkum í kring , sagði „mamma það er fyrsti mars í dag nú fer ... Lesa »

Kolbeinn Höður í 20. sæti á EM

Akureyringurinn Kolbeinn Höður Gunnarsson hljóp í gær í riðlakeppni 400 m hlaupsins á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem fram fer þessa dagana í Gautaborg. ... Lesa »

Banaslys í Skagafirði

Einn lést þegar bíll ók út af veginum við Norðurárdal í Skagafirði á þriðja tímanum í dag. Þrír til viðbótar voru í bílnum en ekki er vitað um meiðsl þeirra, einn af þeim er ... Lesa »

Strandsiglingar hefjast síðar á þessu ári

Ríkisstjórnin samþykkti fyrir sitt leyti í morgun tillögu innanríkisráherra um að hefja útboð fyrir strandsiglingar og var innanríkisráðherra og fjármálaráherra falin framkvæmd ... Lesa »

Ný stólalyfta á teikniborðinu fyrir Hlíðarfjall

Síðustu helgar hafa verið með þeim allra bestu í manna minnum á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Vetrarfrí hafa verið í grunnskólum á suðvesturhorni landsins og fólkið streymt ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá þeir sem búa svo um hnútana að láta keðju en ekki girðingu duga til að verja gilbrúnina meðfram safnaðarheimilinu á Akureyri, segir karl sem hringdi í blaðið. „Það segir ... Lesa »

Móttökustöð fyrir mannsandann og Víxlverkun í Sjónlistamiðstöðinni

Tvær sýningar opna á morgun, laugardaginn 2. mars kl. 15 hjá Sjónlistamiðstöðinni. Annars vegar opnar í Ketilhúsi sýningin Móttökustöð fyrir mannsandann en það er sýning á verkum ... Lesa »

Aðstoðarslökkviliðsstjóri ráðinn

Björn Heiðar Sigurbjörnsson hefur verið ráðinn aðstoðarslökkviliðsstjóri hjá slökkviliði Akureyrar. Björn Heiðar hefur viðamikla reynslu og þekkingu af stjórnun slökkviliða. Hann ... Lesa »

Dragkeppni Norðurlands fer fram á laugardagskvöldið

Dragkeppni Norðurlands verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 2. mars. Keppnin er haldin af samtökunum Hinsegin Norðurland, en það eru fræðslu- og stuðningssamtök hinsegin fólks á ... Lesa »

Zonta segir NEI við ofbeldi!

Í nóvember sl. hófst átak á vegum Zonta International undir yfirskriftinni Zonta segir nei! Með átakinu sem mun standa í tvö ár vill Zonta vekja athygli á verkefnum Zonta klúbba um allan ... Lesa »

Útilokar enn Sjálfstæðisflokkinn

Björn Valur Gíslason, nýkjörinn varaformaður VG, útilokar enn stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum þrátt fyrir að VG hafi í ályktun á landsfundi um helgina sagt að öllu skyldi ... Lesa »

Hús vikunnar: Skarð og Setberg við Hamragerði

Um daginn fjallaði ég um stórbýlið Lund sem stendur ofarlega á Suðurbrekkunni. En á Brekkunni, líkt og í Glerárþorpi voru þó nokkur býli fram yfir miðja 20.öld, þó miklu færri á ... Lesa »

Skoða meira