Nú veit ég ekki hvernig ég á að snúa mér.
Fyrir rétt tæpu ári síðan var lagt fram deiliskipulag sem fól það í sér að afkastamiklar breytingar yrðu gerðar við Drottningarbraut og Hafnarstræti. Eftir að hafa lesið þetta deiliskipulag nokkrum sinnum í gegn, var ég engu nær hvernig nokkrum manni gæti dottið í hug að þetta væri fallegt eða það sem meiru máli skiptir, skynsamlegt. Til að gera langa sögu stutta þá tókum við okkur nokkur saman og undirbjuggum undirskriftarlista á netinu. Þrátt fyrir lítinn fyrirvara tókst okkur að safna rétt rúmlega 1700 undirskriftum á fáeinum dögum. Bæjarstjórn vísaði þessum undirskriftarlista þó frá á gjörsamlega lítilsverðum forsendum.
Nú er ég orðin verulega smeyk. Ég má ekki missa þig svona snemma í lestinum, kæri lesandi, svo ég ætla að hætta að staldra við í fortíðinni. Ég ætla frekar að reyna að fá þig til þess að sjá framtíðina með mér. Framtíðina á Akureyri, hvort sem að þú ætlar þér að búa þar í framtíðinni eða einfaldlega lítur bara á þetta sem þinn griðarstað, þinn heimabæ.
Ég bið þig að líta á myndirnar hér með greininni. Þetta er það sem stendur til að gera. Í stuttu máli, 100 herbergja hótel á þremur hæðum og þrjú þriggja hæða hús með verslunarstarfsemi á neðstu hæð.
Ég sendi bæjarstjórn bréf eftir að þetta deiliskipulag var samþykkt þar sem ég lýsti yfir vonbrigðum og áhyggjum mínum vegna þessa. Þá einna helst vegna þess að bæjarmynd Akureyrar mun eyðileggast, þessar póstkortamyndir sem við þekkjum öll, þessar myndir sem eru hér að neðan verða bara eins og hvert annað Naustahverfi. Þá líka hef ég áhyggjur af því að það sé bara því miður enginn rosalegur markaður fyrir annað hótel á Akureyri í augnablikinu og get ég fullyrt það með hjálp rannsóknar sem var gerð árið 2010 og má finna á netinu. Í bréfi mínu til bæjarstjórnar studdi ég rök mín með ýmsum heimildum og lagði mikið á mig til að koma þessu frá mér sem skýrast og best en ekkert svar.
Nú eru að verða komnir 10 mánuðir síðan ég sendi þetta bréf en ekkert svar hefur komið enn.
Það er sífellt verið að tala um meira lýðræði. Frambjóðendur í allri pólitík tala um að hinn almenni borgari eigi að fá að tjá sig meira, að skoðanir þeirra skipti máli og að þeir muni hlusta! Já, annað hefur nú sýnt sig. Ég að sjálfsögðu er bara tvítugur nýstúdent, ég gæti ekki mögulega vitað neitt svona ung að aldri. Þessi þarf nú bara að næla sér aðeins í háskólagráðu áður en hún reynir að tala við okkur, sama hversu málefnalega hún reynir að koma fram.
En nú reynir á þig, eða okkur öll satt best að segja. Sumir gætu verið sammála þessu og finnst þetta breyting til hins betra. Aðrir eru eins og ég, eru opin fyrir nýjungum og breytingum en á sama tíma vilja varðveita það sem ber að varðveita og heillar augað. Ég veit ekkert hvernig ég að snúa mér í þessu máli, ég veit ekki hvern ég á að tala við eða hver mun hlusta. Mér langar hinsvegar að vita hvort að ég standi ein á móti þessum breytingum. Hvort að almennur vilji bæjarbúa og annarra sem málið snerta sé á móti þessu. Ef svo er vekur þetta vonandi athygli og fólk til umhugsunar. Ég hlakka til að sjá hversu lengi bæjarstjórn og aðrir sem komu að þessari hugmynd og munu koma að þessum framkvæmdum, geti hunsað þetta.
Gleymum háskólagráðunum okkar aðeins og áttum okkur á því að hagsmunir okkar eru bara alls ekkert það ólíkir þegar allt kemur til alls.
Ingibjörg Bragadóttir
Höfundur er háskólagráðulaus bæjarbúi.








