Síðustu helgar hafa verið með þeim allra bestu í manna minnum á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Vetrarfrí hafa verið í grunnskólum á suðvesturhorni landsins og fólkið streymt norður til að skíða í prýðilegu veðri og góðum snjóalögum. Veðrið hefur verið að stríða skíðafólki síðustu daga og nokkra daga í vikunni hefur fjallið verið lokað en Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, segir að enn sé nægur snjór þrátt fyrir hlýindi síðustu daga og að nú sé spáð heldur kólnandi veðri sem geri mönnum að öllum líkindum kleift að framleiða nýjan snjó í brekkurnar.
Guðmundur Karl segir að einnig sé á teikniborðinu, fyrir áeggjan „Vina Hlíðarfjalls“, ný stólalyfta sem ætlunin er að taki við í Strýtu þar sem Fjarkinn endar og geti skilað skíðafólki nánast upp á fjallsbrún. „Síðasti stóri samningurinn um uppbyggingu í Vetraríþróttamiðstöð Íslands í Hlíðarfjalli sneri að snjóframleiðslutækjunum en næsta skref er svo þessi stólalyfta,“ segir Guðmundur Karl sem segir nýju lyftuna líklega kosta á milli 4-800 milljónir króna. „Það er búið að vinna mikla undirbúningsvinnu og búið að deiliskipuleggja svæðið með þetta í huga,“ segir Guðmundur sem vonast til að verkefnið komist fljótlega á framkvæmdastig.
„Þetta er mjög mikilvægur þáttur í uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinni og er alls ekki eitthvað einkamál þeirra sem stunda skíðaíþróttina mest,“ segir Guðmundur sem finnur stöðugt fyrir vaxandi gestafjölda og segir að vetrarfríin í grunnskólunum séu nú þegar orðin jafn umfangsmikil og páskafríin hvað varðar straum fólks á skíðasvæðið.
Þegar svo mikill mannfjöldi sem raun ber vitni er saman kominn til að renna sér á skíðum, þarf að huga vel að ýmsum öryggisþáttum og á dögunum fékk skíðasvæðið í Hlíðarfjalli afhent nýtt og fullkomið hjartastuðtæki að gjöf frá „Vinum Hlíðarfjalls“ en „Vinir Hlíðarfjalls“ samanstendur af hópi fyrirtækja á svæðinu sem vilja efla starfsemina í Hlíðarfjalli eftir því sem kostur er. Hjartastuðtækið kostaði um 200.000 kr. og var keypt fyrir fé frá fyrirtækjunum.
Fyrirtækin sem mynda hópinn „Vinir Hlíðarfjalls“ eru: Íslandsbanki, KEA Hótelin, Flugfélag Íslands, Norlandair, Eimskip, Sjóvá, KEA, Vífilfell, Landsbankinn, Advania, Icelandair, Greifinn, Vodafone, Securitas, N1, Samsung, Höldur og Ásprent.








